Nýjar kvöldvökur - 01.04.1950, Page 43

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1950, Page 43
N. Kv. SVEINN SKYTTA 77 þá eruð þér mesta göfugmenni, og ég æski einskis frekar en að komast í hóp vina yðar.“ „Ekkert er því til fyrirstöðu,“ sagði þessi gamli aðalsmaður, um leið og hann dró lianzkann af sér og rétti Kaj höndina. „Ver- ið þér nú sælir, höfuðsmaður, og ég þakka yður fyrir þá ánægju, sem þér hafið veitt mér í kvöld.“ „Strax í fyrramálið fer ég að hitta kon- unginn,“ svaraði Kaj af tilfinningu. „Ég fæ ekki frið, fyrr en ég hef meðgengið allt fyrir honum." „Það er hreinasti óþarfi, herra I.ykke. I fyrramálið fer hver sína leið og það má drottinn vita, hvort við eigum eftir að vera á vegi livor annars seinna.“ Brokkenhuus kvaddi og fór, Kaj fylgdi honum að ytri hallarstiganum og vottaði þessu göfuga gamalmenni meiri lotningu en hann hafði nokkru sinni auðsýnt yfirboðara sínurn. Að svo búnu fór hann til þess að gefa varðmönnunum síðustu skipanir sínar. „Ef ég man rétt,“ sagði hann í skipunar- tón, „þá sagði ég honum, herra Wolf. að fara við áttunda mann til austurálmu hallarinn- ar, þar sem vistaverur drottningarinnar eru. Þar á hann að vera á verði og sjá um, að allt verði þar með kyrrum kjörum. Brennivín er stranglega bannað og varist um fram allt að hafa j^essa bannsettu jurt um hönd, sem þið hafið flutt með ykkur inn í landið. Þið munið eitra loftið í herbergjum hennar há- tignar með reyknum af henni!“ Með þessari umræddu jurt átti Kaj auð- vitað \ið tóbak, sem hermenn Karls fimmta höfðu komið með frá S]rán i til Þýzkalands, og í tíð fyrrverandi konungs höfðu hermennirnir flutt hana með sér frá Þýzkalandi til Danmerkur og gefið almenn- ingi smjörþefinn af henni. Riddararnir fóru til varðstöðva sinna, að undanskildum Jjessum umrædda I iðjijálfa, Wolf. „Hefur liðþjálfinn skilið skipun mína?“ spurði Kaj. „Já, herra höfuðsmaður!" svaraði Wolf. „Eftir Iiverjum fjáranum er hann þá að bíða?“ „Mínum göfuga herra þóknast að gleyma því, að hann gaf mér leyfi til þess að reka erindi mitt í þorpinu. Félagar mínir segja, að við munum ríða af stað í bítið á morgun, jrví mun mér, aumingjanum, ekki gefast tími til þess að ljúka erindi mínu áð- ur en ég fer.“ „Það er víst alveg rétt,“ svaraði Kaj eins og hann myndi nú fyrst eftir loforði sínu. „Hann á kærustu í einhverjum kofanum jvirna niðri í þorpinu." „ Já, Jrví verður ekki neitað. í hvern bæ sem við komum, þá lendum við í smá ástar- ævintýrum, en stúlkan, sem ég hef áður kynnzt lrér, ber af öllum, sem ég hef áður þekkt, enda er það ætlun mín að ganga að eiga hana, svo framarlega sem það er guðs vilji.“ „Já, en hvað getum við gert? — Ég hef gefið honum loforð mitt og sannur aðals- rnaður verður að efna gefin loforð; en her- manni ber fyrst og fremst að rækja skyldu sína og það er liðþjálfanum fvllilega ljóst! “ „Minn göfugi herra er strangur maður,“ sagði liðþjálfinn með kökk í hálsinum. „Mætti ég ekki aðeins skreppa frá í rúma klukkustund? Eitt mannslíf er í veði, minn göfugi herra! Því að stúlkan mun ráða sig af dögum, ef hún fær ekki að sjá mig. Aðeins eina klukkustund — og að þeim tíma liðn- um verð ég aftur kominn á minn vettvang." „Og hver ætti svo sem að leysa hann af á meðan. Fjarvera hans yrði fallegt fyrirdæmi fyrir hina, eða hitt Jró heldur.“ Örvæntingarfullur á svipinn sneri lið- þjálfinn sér á hæli. Orð Kajs stöðvuðu hann aftur: „Heyrið, liðþjálfi! Mér dettur nokkuð í hug. Ég skal halda vörð í staðinn fyrir hann, í þetta skipti, Jdví að ég veit, að hann er góð- ur og vandaður drengur. Hann verður þá að lána mér skikkju sína og hatt, við erum um

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.