Nýjar kvöldvökur - 15.11.1928, Blaðsíða 4

Nýjar kvöldvökur - 15.11.1928, Blaðsíða 4
162 NÝJAR KVÖLDVÖKUR l S K Ó G I N U M. Þung var þessi ganga, þrautin nú er unnin, grýtta leiðin langa loks á enda runnin. Dagsins dvína sorgir, dansa menn og lcika, inn í bjarka borgir blindur einn jeg reika. Sje jeg fjallið fríða fyrir andans sjónum, skóg í skjóli hlíða skreyttan laufakrónum• Hlœgja grund og hólar hýr í grœnum skrúða, glaðir geislar sólar glitra’ í döggvar úða. Leikur nú í lyndi lífið blinduni manni, alt mjer veitir yndi inni’ í bjarkar ranni. Skógarskuggar svala, skærir geislar ylja, Ijúfar lindir hjala, Ijóð sín fuglar Jrylja. Leikur lauj í blœnum, Ijóssins drekkur veigar, ilm úr grösum grœnum gamall þulur teigar. Lífsins langri þreytu lœkning vorið gefur, cr að hjarta heitu höndum mig það vefur. Man jeg minnar œfi rnargan kaldan vetur, hjer er alt við hœfi, hvergi leið mjer belur. Allar œfistundir eiga vil jeg heima viði vænum undir, vor sumar og dreyma. Pcill J. Árdal. FERMINGÁRBAJRm). Eftir Friðrik Ásmundsson Brekkan. Magnús sá, er seinna var nefndur Magn- ús »Meyjagull«, var gróflega fjörmikill og kappsamur strákur. En eigi jaótti hann bókhneigður. Þegar hann var fullra fjórtán vetra og gekk til prestsins, var hann sama sem ólæs og kverið kunni hann auðvitað ekki. Gengu þá margar frásagnir um heimsku og fávisku Manga. Ein sagan, sem sögð var af honum og viðskiftum þeirra síra Jóhannesar sáluga, var á þessa leið: Prestur hafði lengi leitast við að skýra

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.