Nýjar kvöldvökur - 15.11.1928, Blaðsíða 5

Nýjar kvöldvökur - 15.11.1928, Blaðsíða 5
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 163 fræðin fyrir honum, og þar eð Mangi hlýddi auðsveipur á og jankaði svona öðru hvoru, var prestur farinn að verða nokkuð vongóður um góðan árangur — áður var hann búinn að lofa foreldrum stráks að ferma hann, ef hann skildi fræðin — við meiru gat enginn búist af honum. — Nú ljet prestur hann lesa íFaðirvorið« og gekk það vel, þangað til Magnús kom að orðunum: »vorum skuldunautunv5, þá þagnaði hann við. — Nú, nú! sagði prestur dálítið óþolin- móður. Magnús roðnaði nokkuð við, en þagði. — Mikill skelfilegur drjóli ertu, Mangi minn, erfu búinn að gleyma faðirvorinu? sagði prestur. — Ónei, ekki er það nú, svaraði Magnús. — Nú, haltu þá áfram geyið mitt! Magnús þagði. — Hvað er þetta strákur, því iieldurðu ekki áfram? Prestur tók heldur að byrstast — Nei, mjer finst það einhvernveginn ekki eiga við í guðs orði, svaraði Magnús. — Hvað á ekki við? — Nú, þetta með nautin! — Hvaða naut? — Skuldunautin auðviiað — hvers vegna má ekki eins vel segja »voruin skuldukún- um?« — Mjer er svo dauðans illa við bölv- aða tarfana, bætti Magnús við eins og til skýringar og leit stórum sakleysislegum al- vöru-augum á prest. Síra Jóhannes spratt upp. Magnús brá olnboganum snögg- lega upp fyrir andlitið af gömlum vana. En prestur sinti honum ekki. Hann reif upp hurðina og stikaði út á tún. Gekk hann þrisvar sinnum hringinn í kringum kirkjuna. En þá var honum runnin reiðin. Fór hann þá inn aftur og hjelt áfram að spyrja börnin eins og ekkert hefði í skorist, en ekki yrti hann framar á Magnús, fyr en búið var og börnin fóru að kveða. — Pú getur nú sagt heima, að jeg geti ekki fermt þig — þ j e r verður vísað f r á! sagði prestur um leið og hann tók í hendina á honum — mundu nú að skila því. — Jeg skal reyna að muna það, svaraði Magnús auðmjúkur og undirleitur. Daginn eftir kom faðir Magnúsar að máli við prest. Hann var fremur fátækur og ómagamaður, en þó vel metinn bóndi í sveitinni. Bað hann prest að ferma son sinn. En prestur tók þvert fyrir. Sagði hann, að eigi mundi vera nema tvent til um strák: Annaðhvort væri hann svo heimsk- ur, að honum yrði eigi kent, og mætti þá reyndar ferma hann »upp á fræðin«, sem kallað er, eða þá, að hann væri eigi allur þar sem hann væri sjeður. — Og er það hugboð mitt, mun hann þá verða viðsjáll mörgum, mælti hann. Ræddu þeir málið nokkuð, og samdist það með þeim, að prestur skyldi taka við Magnúsi og reyna að troða einhverju í hann, svo að hann yrði fermdur næsta ár. Reið bóndi heim eftir það og þótti nú vel skipast eftir því sem á horfði. Magnús fór nú á vist með Jóhannesi presti, og var hann »barinn til bóka« — það er að segja, hann sat hjá ám prests um sumarið, og um veturinn bar hann inn vatn, mokaði fjósið og lærði kverið. Alt þótti honum þetta fremur erfið verk, en hið síðasta Ijet honum þó satt að segja einna verst. Pó voru foreldrar hans von- góð um, að hann mundi ná fermingu um vorið, og svo mundi einnig hafa orðið, ef óhöppin hefðu eigi steðjað að. Prestur átti dóftur, sem Jórunn hjet, var hún yngst barna hans og nokkru yngri en Magnús, voru þau eigi alsendis ólík að upplagi og urðu því mjög samrýnd. Prest- ur skifti sjer eigi af því, en konu hans líkaði eigi betur en vel kærleikar þeir, er voru með dóttur hennar og smalanum. Var þó kyrt um sumarið. En er veturinn kom, ræddi prestkona um við dóttur sína og kvað henni sæmra að sitja inni við tóvinnu eða læra hannyrðir, en að standa löngum

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.