Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Blaðsíða 41
skipið. Hefur Kobbi fengið veður af þeim
og ekki getað á sér setið að gera þeim ónáð-
ir, svo sem hunda er siður, en við það hef-
ur birnan espazt til reiði vegna afkvæmis
síns. — Allan daginn og fram eftir kvöldi
var atburður þessi aðalumræðunefni okkar.
Fannst öllum ég hafa sloppið vel frá fundi
mínum við birnuna, og ég er alveg á sama
máli um það. Einhver stakk upp á því, að
ég yrði sæmdur heiðurspeningi fyrir fram-
göngu mína, en annar gerði þá athugasemd,
að ef sár mín hefðu t. d. verið á brjóstinu,
væri það réttmætt, en nú væru þau því mið-
ur á þeim líkamshluta, sem ekki bæri órækt
vitni um hugrekki mitt, og þess vegna drægi
hann verðleika mína til peningsins í efa.
Um þetta urðu talsverðar umræður, en mál-
ið varð aldrei útrætt og að lokum látið nið-