Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Blaðsíða 23
N. kv. KÆRLEIKUR, LÍF OG STARF 5 um rótum standa þau í mannlegum örlög- um, mannlegri hamingju og guðlegri vizku. Því sagði hann ekki: „Það sem þér gjörið mínum bezta bróður, eða það sem þér gjör- ið mínum mesta bróður,“ eða því sagði hann ekki: „Það sem þér gjörið mínum stærsta bróður.“ Nei, þetta sagði hann ekki, heldur hitt: „Það sem þér gjörið mínum minnsta bróður, það gjörið þér mér.“ Og enn sagði hann eitt: „Ekki mun hver sá, er við mig segir Herra, Herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá, er gerir vilja föður míns, sem er í himnunum.“ Og hann marg- endurtók það, að vilji föðurins á himnun- um væri sá, að menn elskuðu hver annan og stofnuðu með því til sigurgöngu fyrir kær- leikann. Jesús bað samtíðarmenn sína aldrei að hlúa að þeim mesta eða bezta í samfélag- inu, heldur þeim smæsta. Þetta er torskilið. Mál, sem skilningur okkar nær ekki enn- þá tökum á, af því að við eigurn ekki nægi- lega elsku til að skilja það, engar trúarsetn- ingar eða trúarjátningar auka eða efla þessa takmörkuðu elsku, heldur eingöngu meiri og betri vilji, meira og betra starf. Þegar við gerumst nemendur Krists í starfi, en ekki bara í orði, kemur þessi elska í dagsins ljós. Því vísir hennar er þegar til. „Farið og gerið allar þjóðir að lærisvein- um,“ sagði hann. Skáldin okkar hafa aftur og aftur varað okkur við valdi trúarjátninga og trúarfjötra, umbúðunum og kreddunum, „sem hégiljum drepa i hlustir á lýS og hefta vill spámanna tungur/1 Þau hafa kennt okkur og hjálpað okkur að greina kjarnann frá hisminu, hvatt okk- ur til þess að styðja þann, sem í hallanum stendur, rétta réttlætinu hjálparhönd og bera sannleikanum vitni. Fagurfræðin er öllum hagsmunum og öll- um erfikenningum æðri. Prestar, kennarar og skáld þurfa að taka höndum saman. Fag- urfræðin þarf að ljóma í kirkjunum og í skólurium. Kennararnir, prestarnir og skáld- in eru varðmenn okkar á vegum úti. Skól- arnir og kirkjan eiga að vera musteri sann- leikans og hafa göfugustu úrlausnarefnin með höndum, og svo að sjálfsögðu heimil- in. „I sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna.“ Sálarfræði ljóðsins og sálarfræði guðstrú- arinnar eru blöð á sama blómi. Fagurfræði ljóðsins og fagurfræði guðstrúarinnar ilm- ur frá sömu rós. Allar frásagnir um andlegt líferni mann- anna, um elsku þeirra og kærleika í lífi og starfi, eru aldrei annað en geislabrot, hálf- kveðin ljóð. Þær frásagnir geta ekki litið öðruvísi út, ekki haft annað form. Þær eru að hálfu leyti dulúðugar, torráðnar rúnir. Fegursta lífsbreytni er göfgasta ljóð mann- lífsins. „Eg batt þér minn fegursta söngvasveig, en samt var þaff dýrast, sem aldrei var talað,“ yrkir Einar Benediktsson. Og ekki er ris töfranna lægra í ljóði Davíðs frá Fagra- skógi: „En leiftur birtast frá liðnum árum, ef lengi og héitt er heðið, og stundum er líkt og lyftist úr bárum, það Ijóff, sem aldrei var kveffiff." Bæði testamentin, hið gamla og hið nýja, eru þannig skrifuð. Þau eru líkingamál og dæmisögur, meira eða minna í brotum, hálf- kveðin ljóð og gneistaflug. Þau verða senni- lega aldrei fullskýrð, en bezt skýrð af þeim, sem eru skáld, bæði andans og hjartans skáld. I Jóhannesar guðspjalli, 16. kap., 25. versi segir svo: „Þetta hefi ég talað til yðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.