Eimreiðin - 01.04.1946, Page 52
116
GISTING
eimrbiðin
1 dýrð vorinorgunsins virtust allar götur svo greiðar á Grána
og það alls engin fjarstæða, að Jóhann væri einn af herrum jarð-
arinnar.
--------Það stóð lieima, að Jóhann geysti í hlaðið og Hall-
dór Pétursson kom þangað úr morgungöngu um túnið. En í liana
liafði hann farið meðan frúin var að vakna og klæða sig.
— Andskoti áttu þarna fallegan fola.
— 0, nokkuð, ef fola skyldi kalla. Hann er þrettán vetra.
—- Svo? Þú liefur sýnilega farið vel með hann. Þetta getið þið
í sveitinni. Og sannast sagt lízt mér prýðilega á mig hérna. Þú
býrð ljómandi fallega. Það liggur við, að ég öfundi þig.
— Svo?
—- Já, veiztu nú livað? Mér liefur stundum flogið í liug að fá
mér kot uppi í sveit, þegar ég er orðinn gamall, og fara að húa.
Það er svoddan (ljöfuls ónæði og erill í þessum bæjum, ahlrei
stundlegur friður. Og þegar maður reskist og veltur út úr megin-
straumnum, þú skilur, þá er ég viss um, að lífið verður enn ömur-
legra og einmanalegra í borginni en nokkurntíma í sveitinni.
— Heldurðu það? — spurði Jóhann og spretti af liestinum.
— Já, það máttu liengja þig upp á. Ég fer bráðum að öfunda
þig, lagsmaður.
1 einu vetfangi skildi Jóhann, að skapbrigði Halldórs voru ekki
minni en veðursins, — og lians sjálfs jafnvel líka. Við svefninn
liöfðu þeir skipt um gang. Og með vínrykinu liafði líka sumt
af einlægninni og alúðinni liorfið. Það var eitthvað lengra á miH1
þeirra núna en í gærkvöldi. Þau voru allt í einu komin þar, þessi
tuttugu ár. Þeir voru nú menn í tveim heimum.
—• Og nú er að drífa sig af stað, — sagði forstjórinn.
•—■ Þið verðið þó fyrst að borða.
-— Borða. Nei, hlessaður, við borðum í Langafirði.
— En ég liugsa, að konan hafi þegar sett upp silunginn.
— Silunginn? Hefurðu nýjan silung úr ánni, sem þú hefur
kannske veitt í nótt?
Það komu óneitanlega nokkrar vöflur á forstjórann. Þett*1
var hunangsréttur, sjaldfenginn. En frúin varð að ráða því, hvort
þau gæfu sér tíma til þess að gleypa hann í sig. Sjálfur ví,r
hann því meðmæltur.
Það varð úr, að þau borðuðu. Frú Bíbí gleymdi auðnartilfi11'1