Eimreiðin - 01.01.1947, Blaðsíða 92
72
BÓK VORSINS
eimreiðin
enn. Hann er gæddur frásagn-
argáfu og getur brugðið fyrir
sig léttri fyndni, sem verkar
notalega á lesandann. Þetta ger-
ir bók hans skemmtilega. En að
hún sé viðburðarík, er auðvelt
að sanna með samandreginni
lýsingu á ævi hans, í örfáum
orðum.
Lárus Rist er fæddur 19. júní
1879 að Seljadal í Kjós, missir
móður sína, þegar hann er tæpra
þriggja ára,' er þá komið fyrir
að Læk í Leirársveit hjá föður-
ömmu sinni, Petrínu Regínu
Rist, kominni í föðurætt af gam-
alli aðalsætt sunnan úr Bæjara-
landi (þaðan er Rist-nafnið
komið), flytzt með föður sínum,
fimm ára gamall, út á Akranes
og síðan aftur, átta ára gamall,
til ömmu sinnar að Læk. Fyrstu
æviárin eru hrakningsár, og
ekki hafði hann dvalið lengi að
Læk, þegar hann er látinn fara
landleiðina alla leið norður í
Eyjafjörð til séra Jónasar,
prests að Stokkahlöðum og síð-
ar að Hrafnagili, og konu hans,
Þórunnar Stefánsdóttur. Á
Stokkahlöðum og þó einkum á
Hrafnagili kynnist hann mörgu
nýstárlegu og líður þar vel hjá
föðursystur sinni, frú Þórunni,
en ekki varð dvölin löng, því
faðir hans giftist aftur, og flytzt
þá drengurinn með honum fyrst
að Stokkahlöðum, en síðan að
Bitru í Kræklingahlíð, en þaðan
með föður sínum, vorið 1892, að
Botni, næsta bæ við Hrafnagil,
og hefst nú sundferill hans.
Strax um fermingu hefur hann
hlotið nokkra æfingu í sundinu,
og nóg er að starfa, f járgeymsla,
hraðskyttuvefnaður, lamba-
rekstrar, göngur, rjúpnaveiðar
— og haustið 1896 er sú örlaga"
ríka ákvörðun tekin að fara 1
Möðruvallaskóla. Þar er dvalizt
veturna 1897—’99, en unnið
fyrir sér á sumrum. Haustið
1900 tekur við fyrsta utanför
— til Noregs. Var ætlunin að
læra klæðagerð. Þetta fórst þ°
fyrir, og eftir heimkomuna til
íslands er unnið við sund-
kennslu, trjárækt og fleiri störf-
Grein Jóns Aðils sagnfræðings
um Askov, í Eimreiðinni 1902,
verður til þess, að hann og flein
íslendingar leita þangað til
náms. Þar dvelst hann í tvö ár,
lýkur þar námi og stundar síðan
kennaranám við fimleikakenn-
araskólann í Kaupmannahöfn
og lýkur þar burtfararprófi 1
júní 1906. Stundar framhalds-
nám um sumarið á kennara-
sundskóla ríkisins, en kemur
heim í ágúst 1906, og hefst nú
óslitin kennarastarfsemi allt til
ársins 1922, að Rist fer um
stundarsakir til Ameríku, og
gerist margt frásagnarvert 3
þessum tíma. Eftir að Rist kem*
ur frá Ameríku, tekur hann upP
kennsluna aftur í gagnfræða-
skólanum til ársins 1931. Enn
eru farnar fleiri utanferðir, °S
þegar Rist flytur alfarinn
Norðurlandi, brýst hann í Þv*
að koma upp sundlauginni 1
Hveragerði, þar sem nú heitu'