Eimreiðin - 01.01.1952, Síða 23
eimiíeiðin
SUEZSKURÐURINN
11
að Bretar höfðu gert rangt með því að leggja ekki ríflega
fram fé til skurðsins. Sex árum eftir að hann var opnaður
til umferðar tók Disraeli 20 milljón sterlingspunda lán hjá
Rothschildsfjölskyldunni og keypti fyrir þá upphæð 176.602
hluti handa Bretum í fyrirtækinu, sem nefnist Compagnie
Universelle du Canal Maritime de Suez og er skrásett í
Egyptalandi. Fyrirtækinu stjórna 32 forstjórar: 16 Frakkar,
10 Bretar, 4 Egyptar, 1 Hollendingur og 1 Bandaríkjamaður.
Samkvæmt Suezskurðar-samþykktinni frá 1888 á hann að
vera öllum frjáls til umferðar, bæði á friðar- og ófriðartím-
um. Skal ákvæði þetta gilda um öll skip, hvort sem eru far-
þegaskip, flutningaskip eða herskip, og án tillits til þess undir
hvaða þjóðfána þau sigla.
De Lesseps fékk sérleyfi til 99 ára um rekstur Suezskurðs-
ins, og er sérleyfistíminn því útrunninn árið 1968.
Suezskurðurinn er um 160 kílómetrar á lengd og um 80
metrar á breidd. Við norðurenda skurðsins er hafnarborgin
Port Said með um 170 þúsund íbúa, en við suðurendann borg-
in Port Taufiq. Borgin Ismailia, þar sem mestar hafa orðið
óeirðirnar undanfarið, er um miðja vegu milli Port Said og
Port Taufiq, við Timsah-vatnið. 1 Ismailia er vatn leitt frá
ánni Níl, og er þaðan séð fyrir neyzluvatni til íbúanna við
skurðinn.
Löngu áður en Lesseps hugkvæmdist að grafa skurð þenna,
höfðu verið gerðar ýmsar tilraunir í sömu átt. Sagan segir,
að fyrsta tilraunin hafi verið gerð á ríkisstjórnarárum Seti I.
um árið 1300 f. Kr. Gríski sagnaritarinn Herodót segir frá
Því, að um 600 f. Kr. hafi Necho, sonur Psametiks I., byrjað
uð láta grafa skurð til Rauðahafsins. Daríus Persakonungur
lauk þessu verki síðar. Árið 640 endurbætti Omar Kalíf
skurðinn. En öld síðar var honum lokað, til að koma í veg
fyrir vöruflutninga til Arabíu.
Suezeiðið hefur frá ómunatíð verið mikilvæg samgönguæð.
Egyptar hinir fornu, Assýríumenn og Persar sendu heri sína
yfir eiðið, er þeir áttu í styrjöldum. Yfir það mun Jósep hafa
farið, er hann ásamt löndum sínum var sendur í þrældóm
til Egyptalands. Þar fóru ísraelsmenn um í herleiðingunni.
Og löngu síðar flúði annar Jósep um það inn í Egyptaland