Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Side 28

Eimreiðin - 01.01.1952, Side 28
Æá u lindi n i. Langt, langt út í löndum, ein- hvernstaðar í austri og suðri, þar, sem leyndardómarnir eiga upptök sín, en paradísarfuglar og páfa- gaukar, eðlur og apakettir una lang- dvölum, sefur dalur einn djúpur, borinn í faðmi fjallanna. Og dalinn dreymir. ... — / þeim dal er Æsku- lindin. — Eigi eldist sú sálin, karli né konu, er drykkinn drekka, þar, úr þeirri lind. Þagnardalur heitir hann, krýnd- ur fjöllum og fríðum skógum, himingnæfandi tindum og heiðum jöklum. Þar drúpa og dimmuskógar.......Þar, í skjóli þeirra, sitja þær syngjandi eikur. Um unaðsfagrar aftanstundir heyrast þaðan angurblíðir söngvar, er töfra vegfarendur. Þar með villist margur inn í myrkviðinn. Sumir koma þaðan aldrei aftur. Og á dimmum og drungalegum nóttum, þá er skuggar dagsins hafa þokazt niður í dalinn og þjappazt saman, þá drúpa eikurnar höfði og haldast í hendur. Þá lúka þær krónum um LíknarstaS. Þar er helsærðum ridd- urum hjúkrað. Þar er þeim hjálpað til lífs. Þar eru þeir græddir, svo þeir ganga heilir. Og þaðan fara þeir frjálsir ferða sinna út um víða veröld. Hvort þar er kristið klaustur, eða heiðið helgisetur, — uffl það fæst engin saga. Tvær fagrar hendur fara þar um sollin kaun komumanna; fagurformaðar hendur og mýkt þeirra máttug. Og það vóru þeir fræknu riddarar fljótir að finna, að það vóru Jochum M. Eagertsson.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.