Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Page 32

Eimreiðin - 01.01.1952, Page 32
20 ÆSKULINDIN EIMREIÐIN lætur sér ekki farast illa eða ómannlega við þá, er liann liefur yfirstigið. Það var ríkulega kappkostað, að sannur riddari bæri af í höfð- inglegri reisn, glæsimennsku og prýði. Synir aðalsmanna vóru til þess upp aldir, allt frá barnæsku, að verða dugandi riddarar. Sjö ára gamlir vóru þeir sendir að heiman í hirðvist, eða til einhvers ræmds riddara, er veita skyldi þeim fullkomnustu þjálfun. Þótti sú þjálfun eigi fullkomin á skemmri tíma en fjórtán árum. Frá sjö til fjórtán ára aldurs skyldi riddaraefnið þjóna húsfreyju riddarans, eða þjóðhöfðingj- ans, til þess að læra að umgangast konur með fyllstu háttprýði og kurteisi. Á þessu tímabili eru þeir þjónar og trúnaðarmenn frúarinnar og mega ekki ljósta upp leyndarmálum hennar eða ávirðingum, ef einhverjar eru. Fjórtán ára gamlir verða þeir skjaldsveinar. Upp frá því eru þeir að einu og öllu þjónustumenn riddarans, en ekki frúarinnar. Þeir em þá fömnautar húsbónda síns, riddarans; fylgja honum á veiðum og í hemaði, halda sig nærri honum í ormstu, jafnan viðlátnir að veita honum hjálp, ef hann særist eða fellur til jarð- ar í sínum þungu herklæðum, eða útvega honum annan hest, ef hann þarfnast. Eftir sjö ára harðvítuga þjálfun, geta þeir síðan sjálfir orðið riddarar, hafi þeir staðizt sinn reynsluskóla. Þá fá þeir skjöld í hönd sér og um sig riddarabelti, sverð og kesju. Þeir fá gullna spora og öll þau þungu riddaraklæði, hvert eftir annað. Síðan em þeir slegnir til riddara; þótti mest til þess koma, að það gerði nafnkunnur þjóðhöfðingi, konungur eða keisari. Mestur var vegur i, að það væri gert á vígvelli eftir unnið hreystiverk. Ridd- araefnið kraup á kné, en þjóðhöfðinginn sló flötu sverði þvert á herðar honum og mælti fram viðeigandi orðum. En sá, er sleg- inn hafði verið til riddara á þessa lund, átti upp frá því að haga sér eins og riddara sómdi. — Fimm em naglar í riddaraskildi, segir í fornu kvæði: göfug- mennska, trúmennska, örlæti, hreysti, hreinskilni. — Húsbónda sínum, lénsdrottni, átti riddarinn ávallt að hlýðnast; efna orð sín, vera hrekklaus í vopnaviðskiptum, vera hlíf og stoð lítilmögnum og hœverskur og kurteis við konur. — Því aðeins var hann sannur riddari.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.