Eimreiðin - 01.01.1952, Side 44
32
BERNARD SHAW BER AÐ DYRUM
EIMHEIÐIN
setning: — Hér er kominn hinn heitt syrgði G. B. S. og enn
skrýddur sínu skeggi.
Ungfrú Cummins segist ekki hafa vitað neitt um það, áður
en fundurinn hófst, að ieggja ætti fyrir sig spurningar til
Bernards Sliaw og um hann. Hönd hennar tók nú að skrifa
ósjálfrátt með miklum hraða, og halda margir því fram, að
stíllinn sé Shaws, aðrir færa í efa, en biðja dáendur Shaws
að dæma sjálfa.
Fyrst skrifaðist þetta: — Hér er Bernard Shaw. Mér er
sagt, að engri einmana sál sé leyft að gera vart við sig á
svona fundi nema að hún segi til nafns síns eða riti það.
En þið hafið engin ráð til að ganga úr skugga um hvort sá,
er þessar línur ritar, sé þorparinn Bernard Shaw. Ég kann
að vera sá, er ég segist vera. En nafnskírteini mitt ber ég
ekki á mér.
Þá vart spurt, hvort Shaw langaði ekki til að lieyra um
lafði Astor og ummæli þau um hann, sem höfð væru eftir
henni í blöðunum.
Lafði Astor var ágæt vinkona mín, skrifaði penninn, svo
ég efast ekki um, að hún vilji mér allt hið bezta og tileinki
mér örlyndi, höfðingsskap og aðrar dyggðir, sem prýtt hafa
hinn látna Shaw, sem elskaði náunga sinn eins og sjálfan sig.
En það er öðru nær en hann hafi verið slíkur mannkosta-
maður.
Þá var spurt hvort Shaw langaði til að heyra um þær um-
ræður, sem orðið hefðu út af erfðaskrá hans.
Penninn tók þá aftur að lireyfast með miklum rykkjum
yfir pappírinn og skrifaði á þessa leið:
Ég gæti skrifað þriggja þátta leikrit um þann hrylling og
skelfingu, sem greip suma menn, er þeir urðu þess vísari, að
ég hefði ráðstafað eigum mínum á þann hátt, að þær yrðu til
nytsemdar í merkilegu fyrirtæki, sem getur orðið til bless-
imar vorri ungu kynslóð og komandi kynslóðum af brezk-
um stofni.
G. B. S. ráðstafaði eigum sínum, eins og kunnugt er, til