Eimreiðin - 01.01.1952, Side 45
eimreiðin
BERNARD SHAW BER AÐ DYRUM
33
til þess að semja nýtt stafróf í enskunni og koma hugmynd-
inni, imi að taka það upp, í framkvæmd. Var þessari hug-
*nynd hans nú andmælt þarna á fundinum og spurt, livað
aetti að gera við allar prentvélar, ritvélar og bækur, því öllu
þessu yrði að umturna og breyta, ef stafrófshugmynd hans
kæmist í framkvæmd.
Penninn svaraði: — Ef þið lítið langt yfir skammt fram
1 tímann, þá munuð þið verða að viðurkenna, að komist hug-
Wynd mín í framkvæmd, þá munu græðast milljónir punda
í tímasparnaði eingöngu, við þá breytingu ensks ritmáls, sem
eg vil koma á með tilstyrk eftirlátinna eigna minna. En
Englendingar eru svo andlega sljóir, þegar um er að ræða
endurbætur þeim sjálfum í hag.--------Og það fýkur blátt
afram í mig, þegar ég hugsa um þvergirðingshátt þeirra.. .
Nú breytti penninn um efni og var orðum beint til fundar-
Rianna: — Ég þekki ekki nöfn ykkar, og verð því að skíra
ykkur með minni aðferð, ef ég skyldi vilja koma aftur og
ræða þessi efni ítarlegar við ykkur. Hér eru tvær konur og
bezt að skíra þær frú X og ungfrú X. Það eru nöfn, sem þær
ættu að gangast upp við að bera. Því X er óþekkt stærð,
°g í augum karlmanna eru konur aðeins eftirsóknarverðar
svo lengi sem þær eru X, óþekktar stærðir.
Svo lauk skriftinni með orðunum: — Ég er-------------
■— Hvað eruð þér? var þá gripið fram í.
-— Óþekkt stærð einnig, því ég hef verið blekktur, ginntur
UPP úr því algleymi, sem var það eina, sem ég þráði að lok-
Um jarðlífs míns.
Að síðustu kom imdirskriftin: — G. Bernard Shaw.
= ★ =
Kíinnisögu-samkeppnin.
Til verðlaunasamkeppni þeirrar um frumsamda kimnisögu, sem EimreiSin
efndi til á síðastliðnu ári, hafa borizt 27 smásögur. En því miður reyndist
engm þeirra svo snjöll kímnisaga, að henni yrðu dæmd verðlaunin. Kímni
(humor) er einkum fólgin í því, að sýna oss það skringilega eða kátbroslega
V1ð tilveruna, menn eða málefni, á góðlátlegan og smellinn hátt. Yfirleitt
forti mjög á þetta í sögum þeim, sem bárust. Spott og nið (satire), kald-
hasðni (sarkasme) og hæðni (ironi) var áberandi í nokkrum þeirra, en ekki
Þannig farið með efnið, að list gæti tahzt.