Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Side 48

Eimreiðin - 01.01.1952, Side 48
Setztur í helgan stein, [Stefán Einarsson, ritstjóri vestur-íslenzka vikublaðsins Heimskringlu, hefur sent Eimreiðinni þessa grein um hinn nafnkunna landa vorn vestra, dr. Thorberg Thorvaldson, prófessor í efnafræði um 35 ára skeið við Saskatchewan háskóla í Kanada. — Ritstj.1 Fyrir hálfu öðru ári birtist í blöðum hér vestra að íslenzkur vísindamaður, dr. Thorbergur Thorvaldson að nafni, hefði látið af starfi sakir aldurs við Saskatchewan-háskóla. Hafði hann þá verið kennari þar í 35 ár og mest af þeim tíma yfirkennari efnafræði- deildar skólans. Hér er um svo merkan íslending að ræða, að mér finnst vel eiga við að minnast nú starfs hans, er hann setzt í helgan stein. Dr. Thorbergur Thorvaldson er ef til vill raunhæfasti vísinda- maður, sem, af íslenzku bergi brotinn, hefur komið fram hér vestra. Almenningi er hann að sjálfsögðu kunnastur fyrir það, að honum tókst að framleiða sement til bygginga, er pottaska (al- kali) vinnur ekki á. En það er þó ekki nema eitt af vísindaafrek- um hans og ekki það mesta. En áður en farið er út í vísindastarf hans, skal stutta grein gera fyrir uppruna og ætt hans. Thorbergur er fæddur 24. ágúst 1883 að Ytri-Hofdölum í Skaga- firði. Foreldrar hans voru Þorvaldur Þorvaldsson og Þuríður Þor- bergsdóttir. Með þeim kom hann fjögra ára gamall til Vestur- heims. Það var árið 1887. Barnaskólamenntun sína hlaut hann að Ámesi (í Nýja-íslandi) í Manitoba sem systkini hans. Eins og mjög áberandi var í hópi yngri íslendinga hér fyrrum, brann heit löngun í brjósti Thorbergs að afla sér þeirrar menntunar, er kostur var á í hinu nýja kjörlandi. En eins og efnahag flestra frumherjanna var háttað, var þetta erfitt. Reyndi það meira en nú á tímum á þolrif og framtak nemendanna sjálfra, hvernig um það fór. En Thorbergur og bræður hans settu þetta ekki fyrir sig. Hinn elzti þeirra, Sveinn, lauk gagnfræðanámi (High School), lagði fyrir sig kaupmennsku og varð fylkisþingmaður í Manitoba.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.