Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 52
40
SETZTUR í HELGAN STEIN
EIMREIÐIN
Hér hefur verið fljótt yfir sögu farið. En jafnvel þó svo verði
að vera, er ekki unnt svo við þetta að skilja, að minnast ekkert
á manninn sjálfan.
Það sem ekki dylst neinum manni, er Thorbergi kynnist, er
hógværð hans og ljúfmennska. Hafa ýmsir á orði haft, eftir að
hafa kynnzt honum, að þar beri hann af flestum. En glatt viðmót
vinnur og mikið að því að gera hann kæran flestum, er á vegi
hans verða. Nemendum hefur sjaldan þótt vænna um kennara
sinn en nemendum Thorbergs um hann. Er það ekki óeðlilegt, því
fúsari eru fáir en hann til hjálpar, er nemendur þurfa á aðstoð
eða góðum ráðum að halda. Og gestrisni á hinu fagra heimili hans
á University Drive í Saskatoon er viðbrugðið. Auðvitað á
hin hugljúfa kona hans, Margrét, hlut þar einnig að máli. Hún er
dóttir Wilhelms H. Paulson, alkunns manns á meðal eldri kyn-
slóðar íslendinga bæði hér og heima.
Þrátt fyrir það þó Thorbergur hafi verið um langt skeið ævinn-
ar fjærri Islendingum og byggðum þeirra í þessu landi, hefur
hann ávallt fylgzt vel með málum þeirra hér. Hann hefur ávallt
keypt íslenzk blöð, tímarit og bækur. Hann hefur og lagt sinn
skerf fjárhagslega til íslenzkra félagsmála, þó hann hafi ekki
notið þess sjálfur. Hann hefur iðulega haldið ræður á íslendinga-
dögum og við önnur tækifæri, er hann hefur komið því við. Hann
hefur tvisvar heimsótt ísland. Var hann fyrir fáum árum sæmdur
Riddarakrossi Fálkaorðunnar af stjórn ættlandsins.
Thorbergur hefur unnið fóstrunni, Canada, mikilvægt og virð-
ingarvert verk með starfi sínu. Hann hefur einnig unnið móður-
inni, ættjörðinni, sóma með því.
Stefán Einarsson.
eftir tuttu^u dr.
Árið 1965 fluttust negrarnir til Marz og yfirgáfu Jörðina fyrir fullt og
allt. Þar mynduðu þeir Negrariki, laust við hatur hinna hvitu manna.
Aðrir ibúar Jarðar urðu eftir og héldu áfram styrjöldum, þar til eftir
lifðu aðeins nokkur hundruð þúsund. Þá byggðu þeir sér eldflugu úr járn-
brotum, er þeir fundu í borgarrústunum, og liéldu til Marz í því skyni að
fá leyfi til búsetu þar.
Þetta er þráðurinn í skáldsögu, eftir Ray Bradbury, sem er aðvörun við
kynþáttahatrinu og hvatning til allra manna um að nota skynsemi og sýna
umburðarlyndi og framsýni.