Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Side 62

Eimreiðin - 01.01.1952, Side 62
50 VIÐ HITTUMST EFTIR 20 ÁR EIMREIÐIN er nóg landrými handa okkur öllum. Ég hef athugað akrana ykkar úr loftinu. Við viljum fá leyfi til þess að yrkja landið með ykkur og fyrir ykkur. Við getum ekki heimtað neitt. Ef þið segið mér að fara, skal ég fara inn í eldfluguna strax og snúa heim aftur. En ég endurtek það, að við viljum allt vinna til þess að þið rekið okkur ekki á burt, að við viljum gera allt fyrir ykkur, halda húsunum hreinum, búa til mat og hvað sem vera skal. Við viljum auðmýkja okkur fyrir GUÐI og mönnum fyrir allt það vonda, sem við höfum aðhafzt undanfarið gegn sjálfum okkur, gegn öðrum og gegn ykkur.“ Hann þagnaði. Það var alger þögn, alger kyrrð. Willie John- son hélt fast um reipið. Hópurinn gaf honum auga, og Hattie tók í hönd hans og beið eins og hitt fólkið. Hún óskaði sér að geta fundið opna leið að hatri þessa mannfjölda, þreifa á því og reyna svo að útrýma því. En hvernig átti hún að fara að því? Hún leit á Willie, sem stóð við hlið hennar, stór og sterkur. Hann var sá eini í hópnum, sem hún þekkti til hlýtar. Hún gekk eitt skref áfram: „Herra.“ Hún vissi naumast hvað hún ætlaði að segja. „Herra.“ — Maðurinn sneri sér að henni með þreytulegu brosi. „Vitið þér nokkuð um Knockwood Hill í Greenwater?“ spurði hún. Gamli maðurinn kallaði eitthvað inn í loftskipið. Eftir augna- blik var loftmynd rétt út til hans. „Stóra eikin á hæðinni, er hún þar ennþá, herra?“ „Nei, hún er ekki lengur til, allur ásinn og eikin með varð fyrir sprengju. Viljið þér sjá?“ og hann benti á myndina. „Má ég sjá?“ spurði Willie um leið og hann gekk fram og greip myndina. Hattie horfði á hvíta manninn og hélt áfram að spyrja. „Segið mér eitthvað um Greenwater.“ „Hvað viljið þér vita?“ „Lifir dr. Philips ennþá?“ Eftir augnablik kom svarið frá flugunni: „Drepinn í stríðinu.“ „En sonur hans?“ „Dauður.“

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.