Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Page 64

Eimreiðin - 01.01.1952, Page 64
Lagakrókaliðugur, lengst í málasýsli, snæfur, klókur, sniðugur, snotur og var Gísli. Eftir því sem ofar hlóðst ávirðingaskyssa, naumast fljóð hans fegurð stóðst, fantinn vildi kyssa. Er hann slóðir aðrar gekk ísastorðu kringum, málabjóður fullt ei fekk fang á Norðlendingum. Kringum hann var herkví gjör hinzt í réttarskvaldri. Samt hann reiddi sigurs-hjör sár á gamals aldri. Lífs er æddi hryðja hörð, hér á storðu gestur, nam hann skák á nýrri jörð, nýr og manna beztur. Horfinn lista lastamann lýður meti ríkan. Frónið átti, fæddi hann, fáan honum líkan. Meðan okkar minjasafn molnar ei að hjómi, Saura-Gísla soranafn sveipar kynjaljómi. örn á SteSja. Ath.: Rangt er það í Saura-Gisla sögu, að Bjarni Skúlason, sem Gisli vélaði 1 Skagafirði, andaðist þá litlu síðar. Hann lifði Gísla um áratug, eða fram yfn siðustu aldamót. Sá ég Biarna um aldamótin, er ég var barn að aldn, en man þó nokkuð eftir honum. Hann var mikill vexti, þykkleitur, dragmaeltu1? með slapandi neðrivör. Talinn var hann allvel viti borinn, og gat veri meinlegur í svörum, ef svo bar undir.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.