Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Side 66

Eimreiðin - 01.01.1952, Side 66
54 FIMMTlU ÁRA MINNING EIMREIÐIN Undirbúningurinn. Benedikt Jónsson, frændi minn, á Auðnum skrifaði mér langt og merkilegt bréf, dagsett 28. marz 1901, þar sem hann skýrir fyrir mér, hvað söngurinn og kvæðin hafi mikla þýðingu á slíkri samkomu sem þessari, og því þurfi að vanda sérstaklega vel allt þar að lútandi. Má svo heita, að bréf þetta sé skipulagning samkomunnar framsett. Ég skrifaði þeim, sem ég bezt treysti í sveitunum í kring, Reykjadal, Köldukinn og Fnjóska- dal, sendi þeim söngprógrammið og kvæðin, sem ég bjóst við að farið yrði með á héraðshátíðinni. Bað þá að æfa fjórraddaðan söng, sem seinna yrði svo samæfður. Þetta fékk góðar undirtektir. Um sumarið, litlu fyrir samkomuna, komu svo allir flokkarnir saman, og var æft af kappi í kirkjunni á Ljósavatni. En vegna fjarlægða söngfólksins, sem dreift var um fjórar sveitir, gátu ekki orðið margar æfingar — aðeins tvær eða þrjár. En það man ég, að öllum þótti gaman að syngja og vinna sem bezt að þessu áhugamáli okkar allra. — I flokknum voru 45 manns — karlar og konur, og fremur góðir söngkraftar, eftir því sem þá gerðist, og mér virtist ég ná góðum tökum á þessu fólki til samtaka og hlýðni. Hátíðin. Þá rann upp hinn mikli hátíðisdagur, 21. júní, bjartur og fagur, og hélzt gott veður allan daginn. Mér er þessi dagur mjög minnisstæður, vegna þess starfs, er ég hafði með höndum, — að stjóma söngnum. Mér er sérstaklega fyrir minni, þegar ég var búinn að stilla okkur upp á söngpallinn neðan við kirkjuna á Ljósavatni. Fólksfjöldinn var fyrir neðan túngarðinn og skipaði sér í flokka hver úr sinni sveit, með fána, er borinn var fyrir. Sigurður Jónsson í Yztafelli gekk fyrir Ljósvetningum, sem var fyrsti flokkurinn, er gekk inn um garðshliðið. Og þá var svo fyrir mælt, að við syngjum móttökusönginn með laginu „Frjálst er í fjallasal“, þrjú erindi, eftir Steingr. Thorsteinsson. Það var vissulega „stemning" og hrifni í þessu einbrotna, litla lagi, sem mörgum, er þarna voru, var lengi minnisstæð. Minni voru flutt mörg og alltaf söngur á milli, sem bezt átti við, svo sem minni héraðsins, minni íslands, minni gesta, minni konungs og fleiri, sem ég er búinn að gleyma. Margir stigu í stólinn og fluttu minni og ræður. Man ég sérstaklega eftir Sigurði í Yztafelli (sem ég hygg að hafi verið aðalstjórnandi samkomunnar), Guðmundi á Sandi og Matthíasi Jochumssyni. Guðmundur á Sandi byrjaði ræðu sína þannig: „Ég lét klippa höfuðhár mitt, svo enginn gæti haft hendur í hári mínu út af því, sem ég kann að segja hér.“ Þá var hann upprennandi stjarna héraðsins í ræðu og skáldskap. Ég man

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.