Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Side 68

Eimreiðin - 01.01.1952, Side 68
56 FIMMTÍU ÁRA MINNING EIMREIÐIN hugmynd um, hvað unga fólkið þá — fyrir hálfri öld, hafði við að stríða og vanhagaði um í þeim sökum. Tökum til dæmis söng- inn, sem hér að framan hefur verið að nokkru minnzt á. Fjór- raddaður söngur var þá nýlega kominn til sögunnar, og kunnátta í því að syngja lag eða leika á hljóðfæri mjög af skornum skammti. Það er grunur minn, að hin áminnsta aldamótahátíð hafi verið mikil vakning fyrir fólkið, beint og óbeint. Enda kom ungmennafélagsskapurinn til sögunnar upp úr aldamótunum, sem var sterk hreyfing þá, til að hjálpa þjóðinni eitthvað úr kútnum. Mér fannst eiga við að skrifa upp þessar 50 ára minningar um aldamótahátíð Þingeyinga, svo ekki falli þær í gleymsku. Því óðum fækkar þeim, sem þar áttu hlut að máli.* Akureyri, 21. júní 1951. Sigurgeir Jónsson. *) 1 Stefni, blaði Björns Jónssonar, Akureyri, skrifar Matthías Joch- umsson 29. júní 1901. Þar segir meðal annars: Samkoman á Ljósavatni 21. júní 1901. „Varstu á Ljósavatni?“ Var ég þar og með mér 4 dætur mínar og 1 sonur. „Og hvernig gazt þér að eða launaðist ferðin?" Vel.... Fjöl- mennið nam víst hátt á annað þúsund og hef ég hvergi þar komið, að jafnmargt fólk sýndi meiri siðsemi, eftirtekt og alvöru við verslega skemmtan. Fyrirbúnaður allur var eftir föngum og þó vel; stjórnsemi betri vonum og með takti og stillingu ... Hinir helztu ræðumenn voru: Sýslumaðurinn (Steingrimur Jónsson), er setti fundinn og síðar minnt- ist konungs, séra Árni próf. Jónsson (aldamótaræða) og Sigurður á Yztafelli, bróðir hans (héraðsminnið), Pétur á Gautlöndum (Islands- minni). Sagðist þeim öllum vel.... Ennfremur fluttu aðrir snjallar ræður, þá er leið á daginn, og nefni ég einkum þá bráðgáfuðu bræður, Friðjónssyni, Guðmund og Sigurjón. Söngurinn fór dável fram, og þótti einkum bera á diskant og miilirödd. Sigurgeir frá Stóruvöllum stýrði flokknum. Á eftir aðalræðunum komu kappreiðar, en þá glímur og aðrar íþróttasýningar...“ Þannig segir Matthías frá þessari héraðshátíð Þingeyinga. (Að nokkru stytt).

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.