Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 79

Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 79
eimreiðin LEIIÍLISTIN 67 Leikfélaginu. — Sýningarverðir gamanleikir teljast til nýlundu í íslenzkri leikritun, ég minnist ekki í fljótheitum annarra en Leynimels 13 eftir Þrídrang og Næturinnar löngu eftir Jóhann- es Steinsson, sem Leikfélag Hafnarf jarðar sýndi í fyrra vor. Það þarf enginn að búast við, að íslenzkir gamanleikir skáki Frænku Charleys fyrst um sinn, en það er óþarfi að fjandskap- ast við þá, formið á rétt á sér — en kannske hafa höfundarnir aðeins verið of mikið að hugsa urn að þóknast áhorfendum, þeir hefðu þurft að pipra plokkfisk- inn, þá hefði fólkið komið. Þjóðleikhúsið var óheppið með sýninguna á Önnu Christie eftir O’Neill. Hvorki þýðingin né leikmeðferðin hæfði þessum hversdagsgráa sorgarleik. Valur Gíslason stóð einn uppi af leik- endum höfundinum til varnar. Annars er farið að bera á því, a<5 okkar góðu leikendur vaxa ekki með hlutverkunum, eða er stærð leiksviðsins í Þjóðleikhús- inu og fjarlægð þess frá áhorf- endum farin að segja til sín, þegar við höfum séð sömu leik- endurna í nokkrum hlutverk- Urn? Gullna hliðið er til vitnis. Sviðsetning leiksins var stækk- ué mynd af leiknum eins og hann var sýndur í Iðnó. En Sræddi leikurinn nokkuð á stsekkuninni? Jón, aðalpersóna leiksins og alls staðar nálægur * gömlu Iðnó, hvarf í þessu klettaklungri og þessari blá- rnóðu sælunnar, kerling hans, nldrei þessu vant, fjarlæg og íramandi. Sumir leikenda mega samt eiga það, að þeir eru hinu stóra leiksviði vaxnir. Indriði Waage sýndi það í Sölumaður deyr og Haraldur Björnsson í aðalhlutverkinu í Dóra, að þeir geta fyllt hið tóma rúm leik- sviðsins með orðsins list, og vel sé þeim fyrir það. Menntaskólaleikurinn er alltaf ánægjulegur, að þessu sinni gamanleikur með mjög tákn- rænu nafni, Æskan við stýrið. Þar er nú fólk, sem leikur af lífi og sál. Gamanleikirnir hjá leikfélögum Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Dorothy eignast son og Aumingja Hanna, tókust báðir eins og til var stofnað, en þrjár ungar leikkonur vöktu á sér athygli, þær systur Minna og Kristjana Breiðfjörð og Erna Sigurleifsdóttir. Hin síðast nefnda gerði þó enn betur í kínverska leikritinu, Pi-pa-ki, sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi á jólum, og er hún nú ásamt Guðbjörgu Þorbjarnar- dóttur, sem líka lék mikilvægt hlutverk í hinu forna og athygl- isverða leikriti, leikkonur, sem mikils verður af vænzt og mik- ils krafizt í framtíðinni. Þó að áhorfendur hafi látið sér fátt um finnast gamanleik- ina, létu þeir ekki með öllu af leikhússókn. Þeir fjölsóttu Gullna hliðið hjá Þjóðleikhús- inu og Pi-pa-ki hjá Leikfélaginu og staðfestu enn einu sinni, að það borgar sig fyrir leikhúsin að velja hið bezta, sem er á valdi þeirra að sýna, en sleppa umþenkingum um fljóttekinn gróða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.