Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Page 81

Eimreiðin - 01.01.1952, Page 81
EIMREIÐIN RITSJÁ 69 Warg-upptuggnu sögu um það, að ssra Björn Jónsson i Bólstaðarhlið hafi átt að vera faðir Björns Blön- dals, sýslumanns, Auðunssonar. Dr. Páll Eggert hefur einnig tekið þessa sogusögn upp í Islenzkar æviskrár. Páll Kolka reynir nú að bæta við tveimur launbörnum hjá séra Birni. Mér finnst þetta óviðfelldið, þetta eru osannanleg mál, og virðist sjálfsögð kurteisi að lofa mönnum að eiga þá foreldra, er þeir voru kenndir við rueðan þeir lifðu hér á jörð, ómót- ruælt. Þegar maður les slíkar sögur eftir menn eins og dr. Pál Eggert °g Pál Kolka, dettur manni í hug, að það er i rauninni mikið, að einhverj- Ir hafa ekki fundið upp á því að kenna þeim Jónasi Hallgrimssyni og Jóni Sigurðssyni launbörn, til þess að geta rakið ætt sína til þeirra ágætu manna! — En þótt ætið megi benda á margt, sent ýmsum þykir betur fara í stórri bók, þar sem maður þekkir fjölda fólks, sem lýst er, þá er bókin Föður- tun afar fróðleg og mjög mikill feng- Ur að henni fyrir alla þá, er kynnast v'lja fólki í Hunaþingi um og eftir oldamót síðustu. Lýsingar á landslagi, fandkostum til sveita og afrétta, svo °g kaflinn GróSur aldanna, er bezt. ' Þrátt fyrir auðsæja viðleitni höf- nndar að segja satt og rétt frá öllu, verður, eins og áður er sagt, ekki hjá tví komizt i mannlýsingum að ýmsu Se sleppt, sem þyrfti að greina frá, getið nokkurra af bræðrum, en öðrum gleymt o. s. frv., sagt frá ornerkilegum hlutum, en öðru merk- ara sleppt. Enda oft álitamál, sitt sýnist hverjum. T. d. var ég oft í Stafnsrétt á æskuárum og sá aldrei mann súpa á flösku úr vasa Margrét- ai gömlu, var þó oft nálægt henni, því þar var oft glaumur og gleði, hvort sem hún var í eldhúsinu á Stafni eða í tjaldi við réttina. Eg heyrði þessa sögu um vasapelann, en held að hún sé ýkt mjög. Margrét var á heimili foreldra minna eftir lát manns hennar, svo og eftir að hún fór frá Sigvalda tengdasyni sínum nokkur ár, þó er þess ekki getið i æviágripi hennar, sem nýlega kom út í bók, „Hlynir og hreggviðir". Þekkti ég því Margréti mjög vel. Hún var mikil kona og skapstór. Mikill kostur við bók Kolka er ágæt nafnaskrá, er fylgir henni. Bók- in er prentuð á fyriimyndargóðan myndapappír, enda hinar mörgu myndir ágætlega vel skýrar. Þótt ég hafi nokkuð fundið að ein- staka atriðum bókarinnar, vil ég enn taka það fram, að ég tel hana mjög merka og vel samda héraðslýsingu og með þeim allra-beztu, er komið hafa út. Það er undravert afrek önnum kafins héraðslæknis að hafa samið þetta mikla verk og er vottur um frá- bærar gáfur og minni. Og þegar þess er gætt, að höfundur lætur landsmál og héraðsmál einnig mjög til sín taka, hefur gefið út Ijóðabækur með ágæt- um, féguðum kvæðum, þá verður ekki annað sagt en að hann hafi var- ið ævi sinni vel og hvergi legið á liði sínu. Þorsteinn Jónsson. ÍSLENZKASTA SKÁLDIÐ. Jakob Thorarensen: HRlMNÆTUR, kvœSi. Reykjavík 1951 (Helgafell). Fyrir nokkru var ég staddur þar, sem nokkrir mennta- og listamenn voru að tala um ljóðagerð. Lærðasti maðurinn i hópnum, doktor í íslenzk-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.