Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1914, Side 4

Ægir - 01.07.1914, Side 4
80 ÆGIR og átti tal við þá um sjávarútvegsmálefni og enn öðrum skrifaði jeg, sem mjer hafði verið bent á að líklegir mundu til að verða sjávar- útveginum að gagni. Af mönnum þeim, er jeg átti tal við, fjell mjer einna best við Ólaf yngri Thorlacius frá Bæ á Rauðasandi. Hann er mikil áhugamaður og hefur komið ýmsu þarflegu í framkvæmd í hreppi sínum og er þar þó strjálbygt og erfitt um sam- göngur. Lofaði Ólafur mjer að g jöra tilraun til að stofna deild í hreppi sínum, og vona jeg að það takist, en ekkert hef jeg heyrt frá honum sfðan. í Reykjavík dvaldi jeg þar til 24. Apríl að jeg fór með Ingólfi til Keflavíkur. Boðaði jeg þar til fundar um kveldið, en aðeins fáir menn mættu. Flutti jeg þar ekkert erindi, að því sinni, en átti tal við þessa fáu menn, sern mættu, einkum um lendingarbót þar í Keflavfk. Gekk jeg með þeim um kauptúnið og leit á hina ýmsu staði, er menn höfðu augastað á, sem bryggjustæði eða lendingar- stæði. í Keflavík eru menn mjög ósam- dóma um hvað gera eigi í þessu efni, og væri ástæða til að verkfróður maður yrði látinn skera úr þeim ágreiningi. En víst er um það, að þar er brýn þörf á lendingarbót. Mun jeg í ársskýrslu minni fara nánar út í þetta mál og láta uppi álit mitt um um það. Laugardaginn 25. Apríl fór jeg úr Kefla- vfk út í Garð. Útsunnanrosi var allan dag- inn með stórvirði og bleytu og kafaldi á víxl. Var jeg gangandi þá leið og er það sá versti vegur, sem jeg hef farið á æfi minni, en sagt var mjer, að hann væri ekki sem verst- ur að sumrinu, þegar þurt væri orðið um. í Garðinum gisti jeg í Kothúsum, hjá Þor- valdi bónda Þorvaldssyni. Sunnudaginn 26. Apríl fór jeg um Garðinn og skoðaði Garð- skagavitann og átti tal við ýmsa menn. Kl. 3 um eftirmiðdaginn flutti jeg erindi í Templarahúsinu. Á þeim fundi voru um 80 menn. — Nokkrir menn gengu í Fiskideild- ina f fundarlok. Um kveldið fór jeg suður á Miðnes og gisti í Sandgerði hjá Einari bónda. Er Ein- ar fjörmaður mikill og áhugasamur; er hann eigi gamall, en þjáist af gigtveiki og mun það draga eigi alllftið úr framkvæmdum hans. Einar boðaði til fundar í barnaskólanum f Sandgerði kl. 2 á máaudaginn 27. apríl. — Veður var hið versta, sem hugsast getur, en þó mættu um 30 menn á fundi, en margt af því voru menn, sem stunduðu fiskiveiðar frá Sandgerði, en eiga heima utan sveitar. Flutti jeg þar fyrirlestur og að honum loknum stofnaði jeg deild með 11 meðlimum. í stjórn þeirrar deildar voru kosnir: Einar Svein- bjarnarson í Sandgerði, Jón Pálsson og Sig- urður Kjartansson. Um kveldið hjelt jeg aftur inn í Garð og fjekk á þeiri leið eitt hið versta veður, sem jeg hef nokkru sinni komið út í. Gisti jeg enn í Kothúsum. Morguninn eftir hjelt jeg frá Kothúsum inn í Keflavík, var nú vegur- inn mun betri, því að hörkufrost hafði verið um nóttina. Boðaði jeg enn til fundar þar og mættu þá um 30—40 menn. Flutti jeg þar erindi og urðu um nokkrar umræður á eftir, er einkum lutu að strandgæslu. Var það Arnbjörn Ólafsson, er einkum vakti þær umræður. Nóttina milli hins 28. og 29. Aprfl gisti jeg í Keflavík og hjelt svo heim til Reykjavíkur hinn 29. Á ferðalagi þessu var mjer allstaðar tekið sjerlega vel. Húsakynni eru vfðast allgóð og mikil, en þó var á þessum tíma fremur þröngt, því að allir útgerðarmenn halda út- róðramenn og verða að sjá þeim fyrir hús- næði, en gestrisni mun á þessu svæði vera eins og þar sem hún er best hjer á landi og verður húsrúmsleysi sjaldan að meini. Vertíðin á Miðnesi og í Garði mun hafa að þessu sinni verið með rýrara móti, en aftur á móti mun hún hafa orðið í góðu meðal- lagi í Njarðvíkum, Vogum og Vatnsleysu- strönd og jafnvel í Keflavík. Sunnudaginn 3. Maí Iagði jeg af stað með

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.