Ægir - 01.07.1914, Blaðsíða 14
90
Æ G IR
hjer til, þá gætu þau hjálpað til þess að
aðstoða umkomulitla fiskimenn og efla niður-
suðuiðnaðinn hjer á landi.
Það væri óskandi, að þessar línur gætu
orðið til þess, að opna augu manna og
beina hug þeirrá að því, hvað nauðsynlegt
er að gera, til að efla og koma upp fiski-
veiðum á grunnmiðum og inni á fjörðum,
til hagsmuna fyrir smámennin, sem hafa
ekki efni á að eignast báta þá með áhöld-
um, sem eru ómissandi við fiskiveiðar í stór-
um stíl. Tækist það, þá væri náð tilgang-
inum með þessum Iínum. n,
Aths. Ofanrituð grein er eftir danskan
vjelfræðing, sem lengi hefur verið í förum
hingað til landsins. Ritstj.
Heima.
Ráðherraskifti
eru nú orðin hjer. Var Sigurður Eggerz
sýslumaður kosinn ráðherra, Sunnud. S- Júlí;
var kosningin símuð til konungs; hann boð-
aði S. Eggerz þegar á sinn fund og tók hann
sjer far með „Glen Gelder" til Liverpool og hjelt
þaðan til Khafnar. — 22. þ. m. frjettist svo
hingað, að konungur hefði samþykt kosning-
una og er því hr. Sig. Eggerz ráðherra ís-
lands, og er hans von þessa daga. {2^h).
Fiskifjelag íslands
hefur afhent kaupmanni Þórði Bjarnasyni
í Reykjavík, umboð til að afgreiða olíupant-
anir, og alt er að olíukaupum lýtur,
Erindreki Fiskiíjelags,
Matthías Ólafsson, situr nú á þingi. —
Vjelfræðingnr Fiskifjelagsins,
Ólafur Sveinsson, er um þessar mundir í
Reykjavík, vinnur hann nú að bók þeirri,
um notkun mótora, er í ráði er, að muni út
koma í haust eða vetur. Að öllum líkindum
verða námskeið haldin fyrir mótorista í haust
og eftir nýjár; er eigi hægt sem stendur
að segja með vissu, hvenær þau verði, en að
því mun unnið af megni, að þessi námskeið
komist á, og ættu sem flestir að færa sjer
þau í nyt og reyna að sækja þau. Til er
ætlast, að þau skuli haldin á ísafirði og
Seyðisfirði, og á þessa staði verða menn
að sækja þau. — Slík námskeið geta orðið
til ómetanlegs gagns, einkum þar sem hagar
til eins og hjer, að vart er unt að fá kenslu
í þeirri grein, en bæði reynsla og heilbrigð
skynsemi heimtar kunnáttu við það verk,
sem getur varðað mannslífum og eignatjóni,
sje ekki rjett að farið.
Mótorbátar á Stokkseyri 1914.
Á. Lestir HK. Vjela- tegund.
Farsæll . . 132 9.95 8 Dan
Heppnin . 129 5.2 7 8 —
Inga. . . 133 8,84 8 —
Ingólfur 104 5.72 6 —
íslendingur 125 8,58 12 Gideon
Sæborg 136 7.37 8 Dan
Sæfari . . 135 5.95 7 —
Vonin . . IIO 6,57 6 —
Þorri . . 109 6,oo 6 —
Löng útivist í lia.fi.
Hinn 27. Júní s. 1. kom timburskip til
Stokkseyrar „Svanen" að nafni. Það lagði
út frá Halmstað í Svíþjóð hinn 5. Apríl í
vor, var á sjónum allan þann tíma, eða í 83
daga.
Botnvörpuskipin íslensku.
5 botnvörpuskip eru farin á síldarveiðar til
Eyjafjarðar og eru þau þessi: „Skallagrímur",
„Snorri Goði", „Ingólfur", „Eggert Ólafsson"
og „Baldur". Flestir hinna munu nú farnir
að fiska í ís.
„Jón Forseti“
er um þessar mundir í Tynemouth á Eng-
landi, hafði ketill hans bilað svo, er hann