Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1914, Blaðsíða 12

Ægir - 01.07.1914, Blaðsíða 12
88 ÆGIR Stutt yflrlit yfír fiskiveiðar íslands áður fyrri og nú, og hvað gjöra beri til að efla og tryggja fiskiafla nú á dögum við strendur og i fjörðum. Hjeðan frá landinu eins og frá öllum Norðurlöndum hafa lengi verið reknar fiski- veiðar til þess að afla stórs þorsks, en fyrir hjer um bil 70 árum voru það þó aðeins einstöku menn, sem notuðu þilskip við fiski- veiðar, og þau voru aðeins lítil, almennast var að nota báta, 2 manna íör upp að 12 æringum, með jafnmörgum hásetum sem árum, það var ekki alltítt að hafa segl á bátunum, af því að menn höfðu ekki efni til að útvega sjer þau; þó voru stóru skipin, sem voru fremur sjaldgæf, gerð út til að sigla þeim. Ef segl voru á minni skipum voru þau tvísigld, og voru þau þá venjulega eign efnaðri manna. Sjaldan var róið lengra en 2 vikur sjávar frá landi, og notuðu menn sumpart handfæri og sumpart lóðir, er á voru 4 samstæður af önglum, þ. e. a. s. 100 önglar í hverri samstæðu. í vetrarlok, Mars eða Aprflmánuði, komu útróðrarmenn margra mílna leið heimanað, í verstöóurnar og að sjónum þar sem íslaust var, sumir til að veita úrgerðarmönnum lið, sem þurftu á há- setum að halda, og fyrir því fengu hlut, og sumir, ef þeir áttu sjálfir skip, til að halda þeim úti. Margar þrautir og margan skort varð að þola til þess að afla úr sjónum þess fiskætis, sem var hluti af atvinnu þess- ara þolgóðu manna. Alt að 40 árum seinna, hafði fiskiveiðunum farið svo fram, að menn bæði notuðu net og einnig voru þilskip al- geng, og á síðustu 15 árum, hafa fiskiskút- urnar orðið fyrir miklum breytingum, einkum að því er snertir hreyfiaflið. A fáum árum fengu menn sjer litla bifbáta, sem áttu, eftir því sem menn vonuðu, að Ijetta undir með ræðurunum þegar þeir rjeru fram og heim, og flýta fyrir, en það er vafasamt hvort þeir hafa orðið að nokkru Iiði, sem teljandi sje, því um leið bættist við mikill reksturskostn- aður til olíu, aðgerðir o. fl. og hittist svo á, sem oft á sjer stað hjer, að bátarnir legðu á sjóinn í góðu veðri en stormur ryki upp óðara en komið var á sviðið, þá var úr vöndu að ráða; að láta berast fyrir úti á rúmsjó, gátu þeir ekki, þess vegna urðu þeir að leita til lands, en í miklum öldugangi var þungur opinn bátur miklu ver staddur, en ljettir seglbátar, sem eru sjerkennilegir fyrir ísland. Margur slíkur seglbátur hefur bjarg- ast í land gegnum rok og brim, þar sem bifbáturinn náði aldrei landi. Þegar fram liðu stundir, komu stærri þiljubátarnir, og frá Englandi skip með gufuafli (Trawlers), og nokkru seinna frá öðrum þjóðum, sero fiskuðu hjer við strendur, og næstum því um sama leyti fóru landsmenn sjálfir að útvega sjer samskonar skip, og einkum á seinni árum hefur fiskiflotinn aukist mjög í þá átt. Það getur ekki verið annað en gleðiefni fyrir hvern mann, að landsmenn nú geta aflað sjer ríkulegri hlutdeildar f hinum miklu auð- æfum sjávarins með því að taka sjálfir þátt í fiskiveiðum á rúmsjó. Það er þó eitt, sem vekur athygli, sem sje það, að hjer um bil allir bátar smælingjanna eru dottnir úr sög- unni, þeir geta ekki þrifist lengur. Með mikl- um erfiðismunum brjótast þeir út á miðin, en uppgcfnir verða þeir að hverfa heim aftur hjer um bil aflalausir, þar sem þeir áður gátu átt von á nokkurn veginn sæmi- Iegum afla, þar geta þeir verið að keipa með færinu með nauða Iitlum árangri. Af því að engar horfur eru á fyrir þeim, að geta eignast stærri tísku fiskiskip, hætta þeir að stunda fiskveiðar og leita sjcr atvinnu á annan hátt. Meira að segja: mörgum verður það að leita burt af ættjörð sinni, sjálfsagt ekki nærri altaf með glöðu geði, til þess að vera sjer úti um atvinnu í öðrum löndum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.