Ægir - 01.07.1914, Page 15
ÆGIR
91
var að veiðum við Austurlandið, að honum
varð að hjálpa til lands og er þangað kom,
kom það í ljós, að skemdir voru of miklar
til þess að bætt yrði úr hjer. Dró svo björg-
unarskipið „Geir' hann til Englands og
bíður hann þar eftir nýjum katli. —
„Bragi“
er um þessar mundir suður í Þýskalandi,
til þess að fá hin svo nefndu yfirhitunar-
tæki í ketil sinn og vjel.
„Nora“,
síldarveiðarskip, hefur til þessa aflað um
noo tunnur síldar, sem stendur (V7) er
síldarlítið í Flóanum.
„Snorri Gtoði“ og „Siílan“ af Aknreyri.
Fyrir nokkrum dögum sigldi „Súlan" á
kinnungin á „Snorra Goða" er hann var á
síldarveiðum norður á Eyjafirði og um leið
reif hún síldarvörpu hans og braut vörpubátinn.
— Skemdir á „Snorra Goða“ eru metnar á
1200 kr. en varpa og bátur 900 kr. Fyrir
rjetti hafa báðar skipshafnir mætt, en um úr-
slit málsins eru engar greinlegar fregnir
komnar enn.
Vitar og Sjómerki.
Frá 1. Ágúst verður ysti endi Batterigarðs-
ins merktur eins og hjer segir: Yst á still-
adspallinum verða sett upp 2 rauð ljós, hvort
yfir annað, hið neðra 2 m. hið efra 3 m.
yfir pallgólf, 4 m. og 5 m. yfir venjulegt
stórstraumsflóð. Ljósin verða látin loga frá
1. Ág. til 15 Maí, á hverri nóttu frá J/2
tíma eftir sólarlag til V2 tíma fyrir sólarupp-
komu.
Á Svörtuloftavitanum verður kveykt 1.
Ag. Sbr. Lögbirtingarblaðið nr. 22., 28.
Maí 1914.
Breyting Öndverðaness vitans er fullgerð,
á hinum nýja vita verður kveikt 1. Ágúst.
Samb. Lögb. nr. 22, 28. Maí 1914.
Brlendis.
Yerslunarfrjettir "/7 1914.
í Bergen var verð á meðalalýsi frá 45—
55 kr. tunnan. Soðið lýsi 27 kr. á olíutunn-
um. — Fyrir tunnu af síld var þann dag
borgaðar 15 kr. — Fyrir tunnu af hrognum
var borgað 37 kr., 27 kr., 17 kr.
Innflutningur af íslenskum saltfiski til
Norður-Ítalíu, nam í fyrra 8,ooo smálestum
og verð á þeim fiski var þrisvar sinnum
hærra en fyrir 25 árum.
Verð á íslenskum flskiafurðum í Khöfn
9. Júlí 1914.
Saltfiskur (þurfiskur) óafhnakkaður, 18
þuml. og þar yfir, 95—96 kr. skippundið,
smáfiskur 82,00, isa 77,00, Labradorfiskur
68—70,00, upsi 55,00, keila 65,00, hnakka-
kýldur stór fiskur 100,00, hnakkak. millifiskur
90.00.
Verðið er miðað við fisk af bestu tegund.
Sje varan ekki fyrsta flokks að gæðum, er
prísinn lægri.
Lýsi. Þorskalýsi ljóst, grómlaust 36,00,
dökt 30,00, meðalalýsi 50,00 hver 105 kilo.
Hákarlslýsi Ijóst 35.°°> brúnt 30,00 hver
105 kilo.
Sundmagar 1,20 kiló.
Hrogn. 22 krónur tunnan 125 kiló. Nettó-
vigt.
Selskinn. Engin eftirspurn, verða lfklega
ekki yfir 3—4 kr. hvert.
Síld. Það liggju enn mörg þúsund tunnur
óseldar af gamalli síld og selst hún varla
yfir 6 kr. tunnan. Fyrir nýja síld er búist
við að fáist 17—18 au. kiló, nettó.
Spánar og Ítalíufiskur, matinn af hinum
Iögskipuðu fiskimatsmönnum, fob Island. Spán-
arfiskur (málsfiskur) 102 ríkismörk, smáfiskur
77 krónur, ísa 68 kr., Labradorfiskur 65 kr.
Aflijúpaður minnisvaiði.
Hinn 7. júlí var í Lundúnum afhjúpaður
minnisvarði hins nafnfræga siglinga- og
landkönnunarmanns, s»cipstjóra Cook, og voru
þann dag liðin 135 ár frá dauða hans. Hon-