Ægir - 01.02.1916, Blaðsíða 5
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS
9. árg.
Reykjavik. Febrúar 1916.
Nr. 2.
iir Fiskiielais t
Laugardaginn 12. þ. m. bjelt Fiskifje-
lag íslands ársi'und sinn í húsi K. F. U.
M. kl. 87« e. húd.
Forseti setti fundinn og gekst fyrir
kosningu fundarstjóra.
Fundarstjóri var kosinn Brynjólfur
Björnsson tannlæknir.
Forseti skýrði frá hag fjelagsins og at-
höfnum þess á liðna árinu.
Skýrði hann fyrst frá starfi erindreka
fjelagsins erlendis og skýrslu hans. Þar
næst frá starfsemi vjelfræðings fjelagsins
og námskeiðum þeim, er hannj,hefði hald-
ið á árinu. Að síðustu skýrði hann frá
starfsemi erindrekans hjerlendis, ferða-
lögum hans, deildarstofnunum og því um
líku.
Að síðustu gat hann skýrsluforms þess,
er erindrekinn hefði búið undir prentun
og fjelagið hefði látið prenta til gefins
útbýtingar meðal fiskimanna.
Erindreki fjelagsins fór i haust kring-
um land og kom á fót i þeirri ferð 4
deildum, á Siglufirði, Ólafsfirði Hrísey og
Dalvík. Hann átti og hlut í að stolnuð
var deild á Gjögrum við Reykjarfjörð.
Þá gat og forseti aðgjörða fjelagsins í
sleinolíumálinu. Urðu síðar nokkrar um-
ræður um það mál.
Þá mintist og forseti á vátrygging sjó-
manna, sem að undanförnu hefur verið
eitt af mestu áhugamálum fjelagsins. Gat
hann þess, hvernig því máli væri nú
komið, og lét uppi ósk um, að fundar-
menn léti uppi skoðun sína í því máli.
Ræða forseta stóð yfir um 17* stundar.
Fundarstjóri þakkar forseta fyrir góðar
skýringar og góða stjórn, og lýsir yfir
að orðið sje frjálst.
Af fundarmönnum tók Benedikt Sveins-
son alþingismaður fyrst til máls. Þakk-
aði hann forseta fyrir ræðu hans og vel
unnið starf.
Næstur tók til máls Gísli lögmaður
Sveinsson. Laut ræða hans mest að stein-
olíumálinu.
Benedikt Sveinsson svaraði ræðu Gisla
Sveinssonar.
Þá tók til máls Sveinn kaupm. Guð-
mundsson á Akranesi, sem var mættur
sem íulitrúi fiskifjelagsdeildarinnar »Bár-
an« á Akranesi. Lauk hann lofsorði á
skýrslu Matth. Þórðarsonar, og áleit, að
bendingar þær, er hún gefur, mættu
margt golt af sér leiða, ef þær væru hag-
nýttar.
Þá var vátrygging sjómanna tekin til
umræðu.
Fyrst tók til máls Matthías Ólafsson
erindreki. Skýrði hann meðferð alþingis
á því máli og á hvern rekspöl málið nú
væri komið. Hjelt hann því fram, að
nauðsyn bæri til að lögleiða skyldu-vá-
tryggingu, er einnig næði til slysa. Óá-