Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1916, Qupperneq 17

Ægir - 01.02.1916, Qupperneq 17
ÆGIR 29 hugsað mjer að minnast dálítið á ára- bátaslysin líka, en af þvi jeg lief orðið svo langorður, sleppi jeg því í þetta skifti, vinst máske tækfæri til þessseinna. Reykjavík 10. febrúar 1910. Xrækiinpr til faSi. Það eru aðeins fá ár siðan fólk í Belgíu fór að neyta kræklings. Aður en ófriðurinn hófst, var þó farið að ílytja krækling inn frá Hollandi. Síðan stríðið hófst heiir innílutningur- inn aukist ákaflega, og eftir þvi sem frá er skýrt í »Deulsche Fiskerei-Zeitung«, flytja nú skip svo tugum skiftir í reglu- hundnum ferðum um 100 smálestir hvert af kræklingi frá söndunum við Schelde- mynni til Belgíu, einkum til Brússel. Kræklingur er þannig orðin þjóðar- fæða i stórum stil í landi, þar sem ostr- ur voru þvi nær eina skeldýrið, sem neytt var áður. Svinaiifur setn fiskibeíta. I desemberhefti af »Norsk Fiskeritid- ende« 1915 stendur svolátandi grein: »Eins og sjá má af þvi, sem hjer fer á eftir, er svinalifur í miklu áliti í Dan- mörku, sem fiskibeita. Um þetta skrifar P. i »D.F.T. (Dansk Fiskeritidende). »Frá Harboön« er skrifað: »Beitumálið er mjög iskyggilegt áhyggjunfni á vetrarver- tiðinni sem í hönd fer. Svo er mál með vexti, að svínalifur er aðalbeitan, og hún er stigin afskaplega í verði. Verðið er nú ekki undir 3 kr. pr. stk., þar sem hún áður kostaði rúma 50 aura. Þegar nú þess er gætt, að norsk brisl- ing hefur hækkað mjög i verði, veldur þetta miklum erfiðleikum fyrir fiskiveið- arnar fram yfir það sem vanalegt er. Mundi ekki tjá að snúa sjer til rjettra hlutaðeigenda til þess að fá sett einhvers- konar meðalverð á lifrina? Eigi væri það nema sanngjarnt og nauðsynlegt tillit til atvinnuvegarins. Formannavísur. Guðfínnur Pórarinsson, af Eyrarbakka. Stýrir ílausti fengsamur. fjarðar-roða-eiðir, gætinn, hraustur Guðfinnur, gegnum boðaleiðir. Lætur þreyta »Fálkann« flug flóðs um reiti kalda, drengja sveitin sýnir dug', sær þótt bleyti falda. ivar Geirsson, af Eyrarbakka: Kafteinn ör á öldujó Ivar Geiri borinn, æ með fjöri sækir sjó, seigur, eirinn, þorinn. »Vonin flýtur ferða-trygg, — faldar hvítu boðinn — sundur brýtur báru-hrygg, byrjar nýtur gnoðin. Jóhann Guðmundsson, frá Gamla-Hrauni: Jóhann eigi hefur hátt, Hrönn þótt veginn grafi,

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.