Ægir - 01.02.1916, Qupperneq 19
ÆGIH
31
að á skrifstofunni er engin skýrsla ura
bátafjölda í hverri veiðistöð og þvi ekki
hægt enn, að senda rjetta tölu.
Slík skrá er þó nauðsynleg nú, en
hvort hún verður það síðar meir er ó-
sagt hjer, það kemur undir hvernig þess-
um skýrsluformum verður tekið, hvort
þau verða fylt út og send aftur útfylt
skrifstofunni. Yerði það eigi gert þá
sýnir það, að skýrslur um aðalatvinnu-
veg landsins eiga að vera í sama sukk-
inu og undanfarið, að íslendingar eiga
að halda áfram að vera sú þjóð, sem
ekki getur greint frá afla þeim, er á land
berst. Þegar allar tilraunir virtust á-
rangurslausar, þá var þetta þrautaráð
telcið. Nú er að sjá hvernig það reynist,
tilraun þessi kostar um 1200 kr.
H/f. Í8björniun.
Þeir afgreiðslumaður Thorefjelagsins,
hr. Ól. Benjamínsson og skipstjóri Geir
Sigurðsson, eru nú orðnir eigendur ís-
hússins við tjörnina í Reykjavík og gufu-
skipsins »Nora«, sem var sildveiðaskip
h/f. »ísbjörnsins«. Hr. Geir Sigurðsson
hefur undanfarin ár verið sldpstjóri á
»Nora« og aflað mæta vel.
Bátstapi.
Laugardaginn 12. febrúar var hjer gott
veður allan daginn, var þá verið að út-
búa mótorbát, er bærinn leigði til fiski-
flutnings og átti hann að fara suður að
Sandgerði að sækja fisk og hafði ýmis-
legt meðferðis þangað, svo sem járn og fl.
Siðari hluta dags lagði hann hjeðan á
stað, komst suður fyrir Skaga, en er
þangað kom var komið svo mikið brim,
að ólendandi hel'ur þótt, þvi margir bát-
ar, er róið höfðu þann dag frá Sandgerði,
lögðu ekki á Sundið, heldur fóru inn
fyrir Skaga og hjeldu sjer við um nótt-
ina fyrir framan Garð og Leiru. Varð
albrima á hálf tíma. Af hverjum orsök-
um bátur þessi hjelt áfram veit enginn,
en hann fórst, hefur fengið ólag eða rek-
ist á sker. Þar druknuðu 2 menn, for-
maður Markús Magnússon frá Litla-Seli
í Reykjavik og vjelamaður að nafni
Kristján Einarsson.
Líkin ráku á land 1—2 dögum eftir
slysið og voru flutt hingað til Reykja-
vikur.
Bát þennan átti hr. Loftur Loftsson á
Akranesi.
Um 20.
veiða.
þ. m. lögðu þilskipin út til
Meðalverð á fiski og fiskiafurðum 1915.
Stór fiskur nr. 1. 100—140 kr.
— — — 2. 90—130 —
Smáfiskur 95 —
Labrador 90 —
Ýsa 90 —
Ufsi 80 —
Keila 80 —
Þorskur úr salti 0,40 pr. kíló.
Langa 90 —
Sundmagi kr. 1.50 pr. kiló.
Meðalalýsi tunna 90—130 —
Hrálýsi — 70—100 —
Dökt lýsi — 60—100 —
Erlendis.
Verslunarfi’j ettir.
Árið 1915 er einstakt í sögu landsins,
að því Ieyti, að aldrei hafa íslenskar vöi'-
ur komist i jafnhátt verð. Sumar vörur
hafa verið í margföldu vei'ði við það,
sem átt hefur sjer stað næstu undan-
farin ár, t. d. lýsi, sem hefur komist i