Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1917, Blaðsíða 6

Ægir - 01.11.1917, Blaðsíða 6
158 ÆGIR æsku að nota vel timann og því að eins kom hann svo miklu i framkvæmd á æfi sinni sem raun gaf vitni, að hann liélt ávalt uppteknum hætti, að vera sí- starfandi og að vera hagsýnn um störf sín. Til 14 ára aldurs ólst hann upp i Laufási. Þá fór hann til móðurbróður síns, Ólafs timburmeistara Briem á Grund, til smíðanáms og dvaldist þar að mestu til I6V2 árs aldurs, en þá fékk hann sveinsbréf. Var hann nú við smíðar liingað og þangað, en til heimilis í Lauf- ási. Þá var síra Björn Halldórsson orð- inn aðstoðarprestur síra Gunnars og voru þeir alla æíl mestu vinir síra Björn og Tryggvi. Á 17 ára afmælisdegi Tiyggva var hann við smíðar heim í Laufási. Kom síra Björn þá iil hans og ílutti honum ljóðabréf er var 17 visur. Var bju'jað á fæðing hans og rakin sagan, en síðasta vísan er svona: Hérna eg brýt við blað Bara eg segi það: Svona’ er hann sautján vetra, seinna verður þó betra. Síra Gunnar dó árið 1853, en ekkjan hafði búið næsta ár og var Tryggvi fyrir búinu. Og fyrsta búskaparár síra Bjarn- ar, er við tók í Laufási, var Tryggvi ráðsmaður hans. Næstu árin þar á eftir átti Tryggvi heimili á Hálsi í Fnjóskadal, en þá var móðir hans gift, í annað sinn, sira Þor- steini Pálssyni á Hálsi. Þau árin vann hann mjög að smíðum. Bóndinn. Árið 1959 gekk Tryggvi að eiga Hall- dóru dóttur síra Þorsteins á Hálsi og sama ár reistu þau bú á Hallgilsstöðum. Halldóra var gáfuð og góð kona og vel að sér um marga hluti, en átti við mikla vanheilsu að striða. Lá hún rúmföst svo lengi að samtals mundi það jafn og hálf- ur hjónabandstími þeirra og andaðist í Kaupmannahöfn 7. marz 1875. Hallgilsstaðir eru heldur lítil jörð og hafði Tryggvi því lengst af undir parta af tveim næstu jörðum: Fornastöðum og Veisuseli, enda hafði hann stórt bú, oft- ast 400—500 sauðfjár. Var hinn mesti myndarbragur á búskapnum í alla staði. Á fjórum fyrstu búskaparárunum bygði hann upp allan bæinn og öll penings- hús. Voru þar öll verk unnin af mesta dugnaði og hagsýni, enda ukust nú efn- in og bar heimilið skjótt af öðrum í dalnum. Árið 1863 fór Tryggvi utan með konu sína, til þess að leita henni heilsubótar, en Eggert bróðir hans var fyrir búinu. Þá fékk hann 500 ríkisdala styrk til þess að fara til Noregs, í þvi skyni að kynna sér búnaðarhætti þar. Hafði Pétur Haf- stein amtmaður þá i ráði að stofna fyr- irmyndarbú á Möðruvöllum i Hörgárdal og átti Tryggvi þá að veita því forstöðu. Dvaldist Tryggvi alllengi i Noregi, var á búnaðarskólannm i Ási og nam ostagerð i seljum í Guðbrandsdal og ferðaðist um landið. Þegar hann kom þaðan átti hann kost á að ferðast í sömu erindum til Skotlands, en kaus heldur að hverfa heim. Þegar heim kom var öll ráðagerð hætt um búið á Möðruvöllum og settist Tryggvi því aftur á Hallgilsstaði. Förin til Noregs varð þó sízt árang- urslaus. Má telja víst að mjög hafl við hana vaknað hugur Tryggva um ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir í húnaði og öðru, er hann sá hversu mjög Norðmenn stóðu íslendingum framar um marga hluti. Frásaga hans sjálfs um Noregs- ferðina er enn til og ber þess ljósastan

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.