Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1917, Blaðsíða 27

Ægir - 01.11.1917, Blaðsíða 27
ÆGIR 179 Skólaskip 09 hjálparskip fyrir islenska fiskiflotann. (Pýðingar á bréfum um það efni). 1. Bréf til capt. Geo. J. Wheelser. Liverpool, 19. maí 1915. Capt. Geo. Wheeler. Heiðraði herra. í nokkur ár hefir verið rælt um það á íslandi. hversu ó- missandi það væri að eiga skólaskip fyrir nemendur Styrimannaskólans, og að sama skip mætti lika nota fj'rir gæsluskip á fiskimiðum landsins og sem spitalaskip og björgunarskip fyrir fiskiflotann er óhöpp bæri að höndum. Eg hefi átt tal við ýmsa hér um það, hverjir möguleikar mundu vera á því að fá skip sem hægt væri að nota á allan fyrgreindan hátt, hvað það mundi kosta og hversu dýr árlegar rekstur þess mundi verða. — Mér var ráðlagt að skrifa yður og leita upplýsinga yðar, af því að þér hefðuð reynsln í þessu efni og treysti eg yður nú til að gefa oss holl ráð. Af því að veður er mjög stormasamt á íslandi að vetrarlagi og skipið þarf að nota til svo margra hluta, þá þyrfti það að vera sterkt og gott, en þó verð eg að vekja athygli yðar á því, að verð skipsins og árlegur rekstur verður að reiknast eins lágt og hægt er. Til úlgjalda verður að reikna reksturskostuað skipsins, laun skipshafnar, yfirmanna og læknis, og yfirleitt allar nauðsynjar sliks fyrirtækis. — Eí frekari upplýsinga þarf um hvernig tilhögun á þessu þurfi að vera, þá skal ekki standa á því að útvega yður þær. Væntandi heiðraðs svars yðar. Með virðingu. Matth. Rórðarson. II. Svar frá Mr. Wheeler. Liverpool, 20. maí 1915. Hr. Matth. Þórðarson, 3 ^Rumford Place. Heiðraði herra. — Eg hefi meðtekið heiðrað bréf yðar dags. í gær. Kannast eg við að hafa fengið víðtæka reynslu viðvíkjandí skipum álika því, sem hér er um að ræða. Hefi eg verið á skipi suður við Astralíustrendur sem var eingöngu útbúið til fiskirannsókna og sömuleiðis stýrði eg fiotasnekkjunni »Vivid« sem tekniski skól- inn i Glasgow útvegaði til þess að æfa 50 skipstjóraefni í siglingum og sjómensku, og einnig fór eg með fiskiveiðagæsluskipið »Galiano« handa Canada-stjórninni til Esquimalt í Rritish Columbia. Hvert af þessum skipum var að eins útbúið til þess að vinna einskonar verk, en eg sé að yðar kröfur ganga út á það að sameina þetta þrent og björgun þar að auki. — Áður en farið yrði út i nákvæma tysingu á

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.