Ægir - 01.11.1917, Page 23
ÆGIR
175
verið brúkuð áður. Þá vantar greiðari
aðgang að síldarbeitu. Þorskanet bafði
Einar Markússon reynt þar áður með
dálitum árangri, en þær tilraunir dóu út
aftur, þvi miður.
Mestu framfarirnar í Ólafsvik eru þó
mótorbátarnir, sem nú eru komnir þar
5—G, en sá galli er á, að þar er afleit
lega fyrir þá, nema um hásumarið, þeg-
ar minst er við þá að gera. Vikin er
mjög opin fyrir norðan og austanátt, og
svo aðgrunt, að það er afarmiklum
kostnaði bundið að setja þar bryggur til
þess að leggja uppskipunarskipum að,
hvað þá stærri skipum. Menn eru því
að hugsa um að fá skjólgarð utan til við
þorpið, frá odda, er nefnist »Snoppa«,
og þyrfti þá helzt að dýpka um leið. En
liklega á það því miður langt i land, að
það komist í framkvæmd; velferð kaup-
túnsins veltur þó mjög á þvi í framtið-
inni.
Einn daginn brá eg mér út á Sand,
til þess að sjá þá miklu breytingu,
er þar var orðin á, síðan eg var þar
1897, en henni ætla eg ekki að lýsa hér.
Verstur þrándur í götu fyrir frekari
framförum þar er, ekki siður en i Ólafs-
vik, hafnleysið, því að plássið liggur ó-
varið fyrir opnu hafi. Menn eru að hugsa
um að gera mótorbátalægi í Keflavík.
rjett fyrir innan Sand, og hefir þegar
verið gerð áætlun um varnargarð við ut-
anverða vikina og livað hann mundi
kosta. Það mun vera um 300000 kr.,
þegar hann yrði fullgerður. Eg var svo
heppinn, að það var stórstraumsfjara,
þegar eg fór um Keflavik, svo að eg gat
gert mér nokkuð ljósa grein fyrir afstöðu
garðsins, eftir leikningu af honum, sem
eg hefi séð, og er eg hræddur um, að sá
garður sem gert er ráð fyrir megi verða
miklu öílugi i og um leið dýrari, ef hann
á fyrst og fremst að standast hafrótið,
sem hér getur verið í NV. ált og gera
fult gagn að öðru leyti. — Spurning er
hvort ekki mætti gera einsj gott lægi í
víkinni fyrir utan Sand.
1 þessari sömu ferð1) skoðaði eg einnig
Rifsós (í annað sinn, shr. Skýrslu mina
1897 í Andv. 1898, bls. 59—59) um fjöru,
en skal ekki lýsa honum frekar nú. Er
það ætlun min, að þar mætli gera beztu
höfnina á þessum slóðum, með útgreftri,
ef ekki er klöpp í sjálfum ósnum, né of
grunt fyrir utan hann; en það mundi
kosla afarmikið fé (miljónir). Ef gera
ætti nokkuð á þessu svæði sem lið yrði
að, fyrir tiltölulega lítið fé, þá hygg eg
að það yrði helzt f Ólafsvik, hún er
lengst frá heljaraíli úthafsöldunnar.
Þegar eg kom heim úr þessari ferð,
var það áform mitt að fara til Sandgerð-
is, Keflavikur eða Stokkseyrar, lil þess
að rannsaka mótorbáta-afla. En það lók
þá fyrir allar gæflir, svo að ekkert varð
úr þvi. Fór eg svo í ágústlok til Grinda-
vikur og safnaði þar gögnum af þorski
og ýsu, sem aflaðist þar á grunni.
N ef n dar álit
Fiskiþingsius 1917.
IXefndarálit ]
im» vélgæslu ojgf mótorkcuslu.
Vér, sem Fiskiþingið kaus til þess að
athuga frumvarp til laga um mótor-
kenslu og frumvarp til laga um atvinnu
1) Með mér var Jón Proppé, kaupmaður í
Ólafsvik. Hjá honum bjó eg, meðan eg dvaldi
þar vestra og liðsinti hann mér á allar lundir
við starf mitt. Fyrir pað færi eg honum hér
með innilegt þakklæti.