Ægir - 01.11.1917, Qupperneq 34
186
ÆGIR
á Eskifirði stendur Ijósker á staur, er
sýnir fast hvítt ljós. Á ljóskerinu logar
frá 15. ágúst til 15. maí.
Á Marsrifl við Rjúpavog hefir verið
sett upp sjómerki, þrifótur 4,5 m. hár,
með rauðum þríhyrning efst, og veit eitt
hornið upp. Lögb.bl.
Sjómannakólinn i Xristjaníu.
Hann var stofnaður árið 1845, en ekki
hefir verið bygt yfir hann fyr en nú á
þessu ári, og var húsið vigt í haust.
Fyrst kom til tals að byggja yfir hann
árið 1894 og aftur árið 1900. Skólahúsið
sem nú hefir verið bygt kostaði um
hálfa milj. króna.
Nýlega hafa verið gerðar breytingar á
kenslufyrirkomulaginu, sem gengu i gildi
i haust. Nú er skólinn í fjórum deild-
um: 1. fyrir skipstjóra með ströndum
fram, 2. slýrimannadeild, 3 skipstjóradeild
og 4. æðri skipstjóradeild. Tii þess að fá
aðgang að fyrstu deildinni verða menn
að hafa verið hásetar í 12 mánuði eftir
15 ára aldur. I stýrimannadeildinni er
krafist 30 mánaða sjómensku og þar af
12 mánuði í siglingum erlendis. í skip-
stjóradeildinni 42 mánaða sjómensku og
stýrimannsprófs. í æðri skipstjóradeild er
venjulegt skipstjórapróf inntökuskilyrði.
í öllum deildum er þess krafist, að
sjón og heyrn sé óaðfinnanleg. Kenslu-
timinn i fyrstu deild eru 3 mánuðir en
7 i hinum. —
í Danmörku er þess krafist af stýri-
mannaefnum, að þeir hafi verið í 2 ár
á seglskipum stærri en 60 smál., og há-
setar að minsta kosti í eitt ár, en sú
krafa er fallin niður í Noregi.
Skip talið af.
Það er nú talið vist, að seglskipið
»Beautitul Star«, sem héðan fór fyrir
nokkru síðan norður um land, hafi far-
ist. Á því voru 6 menn: ólafur Sigurðs-
son á Barónsstíg 12, skipstjóri, Lárus
Bjarnason frá Hafnarfirði, stj'rimaður,
Iíetill Greipsson úr Hafnarfirði, Guð-
mundur Jónsson úr Hafnarfirði, og Krist-
ján Jónsson frá Bjarnaborg í Reykjavík.
Þarþegi var Geir Hróbjartsson, ættaður
frá Oddgeirshólum í Flóa.
Störf
er stjórn Fiskifélagsins veitir.
I.
Erindrekastarf Fiskifélags íslands inn-
anlands er laust.
Árslaun 3000 kr.
Veitist frá 1. janúar 1918.
Umsóknarfrestur til 20. desember þ. á.
II.
Starfið sem erindreki Fiskifélags ís-
lands fyrir Vestfirðingafjórðung er laust.
Árslaun 500 kr.
Veitist frá 1. janúar 1918.
Umsóknarfrestur til 20. desember þ. á.
III.
Starfið sem erindreki Fiskifélags ís-
lands fyrir Norðlendingafjórðung er laust.
Árslaun 500 kr.
Veitisí frá 1. janúar 1918.
Umsóknarfrestur til 20. desember þ. á.
IV.
Starfið sem erindreki Fiskifélags ís-
lands fyrir Austfirðingafjórðung er laust.
Árslaun 500 kr.
Veitist frá 1. janúar 1918.
Umsóknarfrestur til 20. desember þ. á.
»Vísir«.
Prentsmiðjan Gutenlierg.