Ægir - 01.01.1919, Blaðsíða 15
ÆGIR
9
innlendra vörutegunda eða sér um útflutning á þeim, skal greiða i landssjóð 3°/0 af
andvirði því, er greiðast* skal seljendum varanna eða þeim, sem þær eru teknar
hjá eignarnámi.
2. gr.
Útflutningsnefnd eða sá sem fyrir hönd landsstjórnarinnar sér um útflutn-
ing varanna, innheimtir skatt þenna á þann hátt, að hún dregur hann frá fjárhæð
þeirri, sem greiða á hverjum einstökum fyrir vörur þær, er ræðir um i 1. gr.
3. gr.
Útflutningsnefnd eða sá sem gegnir samskonar starfi, skal haía viðskifta-
reikning í bókum sinum fyrir hvern þann, sem hún kaupir eða á annan hátt fær
vörur hjá, til útflutnings fyrir liönd landsstjórnarinnar, og skal hún í reikningi
þessum tilfæra allan kostnað, sem leiðir af kaupum eða móttöku og útflutningi
þeirrar vöru, landssjóði að skaðlausu. Ef það kemur fram, að landssjóður hafi eigi
þurft, vegna afskifta sinna af vörum hvers einstaks viðskiftamanns, að leggja fram
alla þá fjárhæð sem skattur hvers einstaks nemur, skal honum endurgreiddur mis-
munuriun að tilhlutun Útflutningsnefndar eða þess er gegnir samskonar starfl, eins
fljólt og verða má.
4. gr.
Vörurnar, andvirði þeirra og vátryggingarupphæð er að veði fyrir gjaldinu.
5. gr.
Úlflntningsnefnd eða sá sem gegnir samskonar starfi, skal gera reikningsskil
fyrir gjaldi þessu eftir nánari ákvæðum fjármáladeildar stjórnarráðsins.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og nær til þeirra vara, sem landsstjórnin
befir orðið að hafa afskifti af, samkv, 1. gr., eftir 14. júní 1918.
Þetta er birt öllum þeim til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.
í stjórnarráði íslands, 7. janúar 1919.
Sigurður Eggerz.
Magnús Guðmundsson.