Ægir - 01.01.1919, Blaðsíða 16
10
ÆGIR
Auglýsing
frá Útflutningsnefndinni.
Samkvæmt reglugerð stjórnarráðsins frá 11. júní síðastl., um sölu og út-
ílutning á íslenzkum afurðum frá árinu 1918, 3. gr., má enginn landsmanna hafa í
sínum. vörzlum eftir 28, íebr. 1919 neinar vörur framleiddar á árinu 1918, ef þær
eigi þurfa beinlínis til heimanotkunar liér á landi, nema þær hafi áður, og í tæk-
ann tima, verið framboðnar Útflutningsnefndinni. Samkvæmt 7. gr. sömu reglu-
gerðar liggja við háar sektir (alí að 500000 króna), ef út af þessu bregður.
Fyrir því að útflutningsnefndin hefir ástæðu til að ætla, að enn sé eftir að
bjóða fram nokkuð af vörum, framleiddum ^ siðastliðnu ári, sérstaklega saltfiski
og lýsi, leyfir hún sér hér með alvarlega að minna á ofannefnda auglýsingu stjórn-
arráðsins. Auk þess vill hún taka það fram, að sökum söluráðstafana hennar á
fiskinum, er nú standa sem hæst, er nauðsynlegt að hún fái framboð á honum
tafarlaust, sbr. tilkynningu hennar nr. 10, 8. gr.
Nú eiga þeir framleiðendur flsk, sem eigi hafa átt beinan aðgang að Út-
flutningsnefnd um framboð á honum, samkvæmt reglum um sölu og útflutning á
fiski, (tilkynning nr. 1 og nr. 5), og skutu þeir eigi að siðnr senda Útflutningsnefnd
tafarlaust tilkynningu um þann fisk, er þeir eiga 31. f. m. Siðan tilkynna þeir Út-
flutningsnefndinni á sínum tíma hverjum kaupmanni þeir selja fiskinn, eða hvaða
félag hefir hann með höndum til fullkomins framsals nefndinni.
Reykjavík, 8. janúar 1919.
Thor Jensen. Pétur Jónsson. Ó. Benjaminsson.
T^lugerð
um
einkasölu landsstjórnarinnar á kolum.
Samkvæmt heimild í lögum nr. 5, 1. nóvember 1917, um heimild fyrir
landsstjórnina lil ýmsra ráðstafana út af Norðurálfuófriðnum, eru hér með sett
eftirfarandi fyrirmæli: