Ægir - 01.01.1919, Blaðsíða 17
ÆGIR
11
1. gr.
Landsstjórnin tekur íyrst um sinn, þangað til öðruvísi verður ákveðið, í
sinar hendur alla verzlun á útlendum kolum í landinu.
2. gr.
Á meðan landsstjórnin hefir kolaverzlunina í sínum höndum, er kaup-
mönnum, félögum svo og einstökum mönnum bannað að flytja til landsins kol frá
útlöndum svo og að selja kol, sem flutt hafa verið til landsins gagnsætt ákvæðum
þessarar reglugerðar.
Þó er skipum, sem koma frá útlöndum, heimilt að hafa meðferðis kola-
hirgðir til notkunar eingöngu í skipunum sjálfum. Heimilt er og þeim, sem eiga
kolabirgðir hér á landi, þegar reglugerð þessi öðlast gildi, að selja þær á þann
hátt, er þeir óska.
3. gr.
Brot gegn ákvæðum 2. gr. reglugerðar þessarar varða sektum alt að
100,000 kr.
4. gr.
Með mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal fara sem almenn lög-
reglumál.
5, gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi þegar i stað.
Þetta er birt öllum til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.
í stjórnarráði íslands, 8. janúar 1919.
Sigurður Jónsson.
Oddur Hermannsson.