Ægir - 01.08.1919, Qupperneq 15
ÆGIR
105
verið notaðir. Reynt hefir verið að sam-
eina þetta tvent þannig, að vinda venju-
lega ullarvetlinga upp úr lýsi eða annari
hráðinni feiti, og hafa þá þannig á hönd-
unum. Rað veit eg að hefir gefist sumum
vel, en þó hefir betur gefist að gera sér
belgvetlinga úr skinni sem falli nokkuð
þétt að höndunum, en þar að þeir verða
sleipir í bleytunni verður að hafa hlífðar-
vetlinga úr lérefti vfir þeim. Konur sem
notað hafa slíkan útbúnað láta vel af
því.
Eg hef fyrir löngu ráðið til þess, að
útvegaðir jn'ðu gúmmíhanzkar og þeir
notaðir. Það er fyrst í sumar sem þeir
hafa verið reyndir. Hafði Páll verzlunar-
stjóri Jónsson hér á Akureyri pantað þá
°g kostuðu 3 kr. parið. Þeir flugu út.
En þeir reyndust misjafnlega og entust
bla. Reir eru of þunnir til að þola
hnjask og vildu rifna, enda fólk óvant
að fara með þá, og nauðsynlegt að hafa
hlífðarhanzka utanyfir. En þó þessi yrði
leyndin i þetta skifti, get eg vel trúað
að hægt væri að útvega sterkari og hent-
hanzka úr gúmmí og þá belgvetl-
lnga. Fingravetlingar úr gúinmi eru of
íeitir og er vandameira að fara með þá
en hina.
En meðan ekki er annað betra fengið,
niun ráðlegast að nota skinnvetlinga eins
°g áður er Iýst og nauðs\mlegt að það
se gert i tíma. Vinnuveitendur verða að
ganga ríkt eftir að stúlkurnar geri það
se,ni bægt er, til að koma í veg fyrir
núðveikina. Slgr. M.
t
Ijatmes ^nðrésson, skipstjóri.
Pann 28. april síðastl. lá fiskiskipið
Portland á Haukadalsbót við Dýrafjörð.
Hannes heitinn hafði stýrt því skipi nokk-
ur undanfarandi ár, við fiskiveiðar á sumr-
in og í ílutningsferðum að vetrinum til.
Pennan dag voru nokkrir af skipverjum í
landi að afla skipinu vatns. Á meðan á
því stóð féll eitthvað ofan úr reiða skips-
ins og lenti á höfði skipstjórans með svo
miklu afli, að hann beið þegar bráðan
bana.
Með Hannesi heitnum hefir sjómanna-
slétt landsins mist einn af sinum ötulustu
skipstjórnamönnum og góðan dreng. Fædd-
ur var hann í Búðarnesi við Stykkishólm
11. marz 1872. Þar bjuggu þá foreldrar
hans, Andrés Andrésson og Guðný Guð-
mundsdóttir, við lítil efni. Þau tluttu siðar
lil Stykkishólms, þá er börnin tóku að
þroskast, og dvaldi Hannes þar síðan. Urn
10 ár eru síðan að faðir hans druknaði í
fiskiróðri undir Jökli, en móðirin lifir enn
við mikla vanheilsu.
Hugur Hannesar heit. hneigðist snemma
að sjómensku, og ekki var hann eldri en
23 ára er hann varð skipstjóri og innan
við tvítugt byrjaði hann að nema sjó-
mannafræði. Kenslan hér heima þótti hon-
uin ekki fullnægjandi, svo að hann lauk
nokkrum árum síðar prófi í þeirri fræði-
grein í Friðrikshöfn í Danmörku.
Hannes heitinn var tvíkvæntur. Með
fyrri konu sinni, Jóhönnu Jónasdóttur frá
Helgafelli, á hann 5 börn á lífi, 3 uppkomin,
en 2 eru enn á unglingsaldri. Hún andað-
ist fyrir nokkrum árum eftir langvarandi
vanheilsu. Síðari kona hans, Ingveldur
Jónsdóttir, er enn á lífi. Henni kvæntist