Ægir - 01.11.1925, Blaðsíða 13
ÆGIR
205
nauðsýnlegt, að breytt sé reglu-
gerð fyrir stýrimannaskólann i
Reykjavík, ákvæðum 8. gr.
þannig, að inntökuskilyrði um
siglingu á yfir 60 rúmlesta skipi
verði feld burtu.
b. Að inntökuskilyrði við fiskiskip-
stjórapróf við skólann verði
önnur og minni, en við siglinga-
skipstjórapróf«.
11. Vitamál. Eftirfarandi tillaga samþ. i
einu hljóði:
a. »Með því Arnarnesvitinn er að
dómi sjófarenda alsendis ófull-
nægjandi sem innsiglingaviti á
ísafjafjarðardjúp, skorar Fjórð-
unðsþingið fastlega á Fiski-
þingið að hlutast til um, að
settur verði nýr og fullkominn
viti á Arnarnes. eða ljósmagn
núverandi vita verði aukið svo,
að hann lýsi að minsta kosti 22
sjómílur.
b. Fjórðungsþingið telur bráð-
nauðsynlegt, að bygður verði
smáviti á Ögurhólmum hið allra
bráðasta«.
Enníremur svofeld viðauka-
tillaga:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiski-
þingið að beita sér fyrir þvi, að
landtökuviti verði settur á svo-
kallað Hvassaleiti á Stigahlíð«.
12. Breytingar á lögum Fiskifélagsins.
Svohlj. tillaga samþ:
a. Við 7. gr. Fiskifélagslaganna: »1
stað þess sem aðalfundur hefir
áður kosið 4 fulltrúa, kjósi hann
íramvegis 3 fulltrúa og fjórðungs-
þingin 3 hvert. Verði Fiskiþing
þannig skipað 15 mönnum«.
b. Við 8. gr. »Atvinnumálaráðherra
skipar forseta Fiskifélagsins, að
tillögu sjáfarútvegsnefnda Al-
þingis«.
13. Bjargráðamál. Eftirfarandi tillaga
. samþykt:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið
að hlutast til um:
a. Að lögskipað verði að rekakkeri
fylgi öllum vélbátum landsins.
Jafnframt sé rannsakað og sett
ákvæði um stærð og þyngd at-
keranna, eftir stærð bátanna.
b. Að bárufleygur skuli fylgja vél-
bátum og sömuleiðis öllum ára-
bátum landsins.
c. Að lögskipuðu eftirliti með skip-
um og bátum verði alstaðar
stranglega framfylgt.
Sömuleiðis var í máli þessu sam-
þykt þessi viðaukatillaga:
a. »Fjórðungsþingið leggur áherslu
á, að veðurathugunarstofan í
Reykjavík verði fullkomnuð svo
sem tök eru á.
b. Fjórðungsþingið beinir því til
Fiskiþingsins að leita itarlegra
upplýsinga um starf norsku
björgunarskipanna og kostnað
við úthald þessara skipa«.
14. Fjórðungsstjórnin var endurkosin:
forseti Arngrímur Bjarnason með 5
atkvæðum og ritari Kristján Jónsson
með 5 atkvæðum.
15. Fiskiþingsfulltrúar til næstu 4 ára
voru endurkosnir: Arngrímur Fr.
Bjarnason með 8 atkv. og Kristján
Jónsson með 6 atkv. Varafulltrúar
voru kosnir: Jón Brynjólfsson með
5 atkv. og Sigurður Kristjánsson
með 5 atkv.
Ákveðið var að halda næsta fjórð-
ungsþing á Isafirði.
Þess skal getið að í 10, 11, 12, og 13