Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1925, Qupperneq 21

Ægir - 01.11.1925, Qupperneq 21
ÆGIR 213 aðferð á lýsinu var mjög áfátt frá heil- brigðislegu sjónarmiði, gerði óbragðið, sem á því var, það að verkum að fólk fékk viðbjóð á að neyta þess. Aðferðin við lýsisvinsluna tók algerð- um stakkaskiftum árið 1848, er Charles Fox, sem var efnafræðingur í Scar- borough á Englandi, innleiddi þá að- ferð að bræða lifrina i kerum með tvö- földum botni með vatni, sem var hitað upp. Hann stofnsetti fyrstu bræðslustöð sina i St. John sama ár. Til þess tíma hafði brúnlýsið verið notað sem lyf, og þektist ekki annað þorskalýsi i verzluninni. Lýsi Fox var ljósgult og hófu ensku lyfsalarnir þegar baráttu gegn þvi, töldu það lakari vöru. Það kostaði mikið erfiði að sannfæra enska kaupendur um það, að lýsi Fox væri betra og að fá fólk til þess að taka það fram yfir brúnlýsið. Árið 1885 kom næsta endurbótin í iðnaðinum. Þá tókst að ná sterininu úr lýsinu með kælingu. Uppgötvun þessi, sem var gerð í Noregi, var harla inik- ilsverð fyrir lýsisiðnaðinn, lýsið varð bæði bragðbetra og auðmeltara. Norsku fram- leiðendurnir héldu uppgötvun þessari leyndri til 1888, en þá varð aðferðin innleidd í Nýfundnalandi af umsjónar- manni einum norskum, Adolph Neilson, er þá var í þjónustu Nýfundnalands- stjórnarinnar. Aðalaðterðin er fólgin í því, að órunn- in lifrin er höfð i hita, 18—25 stig Fahr- enheit, þangað til hún er orðin að þykkri leðju, er því næst siuð gegn um baðm- ullardúkspoka. Það, sem siað er, er ljóst og hreint og helst það þannig, jafnvel við mjög lágan hita. Sá hluti lýsisins, sem ekki storknar, er þvi næst látinn á 25 gallóna blikktunnur. Afgangs verður sterin, sem er um 20°/o af lýsismagninu. Nútíma aðferð. Árið 1903 flutti Charles Fowler, frá New-York, sem þá var í þjónustu Scott & Browne, sem framleiða »Scott’s-EmuI- sion«, þriðju nýungina í lýsisiðnaðinum, harla mikilvæga, til Nýfundnalands: Hann átti frumkvæðið að því, að smíð- uð voru lifrarbræðsluker, sem gufu var veitt beint í og er sú aðferð venjulegast notuð í Nýfundnalandi. Þegar búið er að þvo lifirina nýja og óskemda, er hún látin í ker, sem taka 50—100 gallon. Þvi næst er gufu með 50 punda þrýstingu veitt beint í kerið og lifrin hituð hægt upp, þá soðin þang- að til hvit froða sezt ofan á kerið. Tek- ur það hér um bil V2 tíma- Nauðsyn- legt er að hræra vel í kerinu, svo að öll lifrin, sem í kerinu er njóti suðunnar jafnt. Þegar froðan fer að setjast ofan á, er lokað fyrir gufuna og lýsið látið setj- ast i fimm mínútur. Bezta Iýsið sezt þá ofan á og er ausið úr kerinu. Lýsið, sem flýtur ofan á eftir að kalt er orðið í ker- inu, er ekki notað sem meðalalýsi. Lýsið er svo siað í kæliker og látið standa yfir nóttina. Strax morguninn eftir er það tvi- siað gegnum hreina poka úr vandaðasta ameriskum baðmullardúki. Lýsið er leitt úr siunum gegn um blikktregt beint í blikktunnurnar, sem eru geymdar á svöl- um stað, þangað til þær eru látnar í skip. Hins mesta hreinlætis er gætt um áhöldin, eru þau vandlega þvegin úr sápu og vatni, svo þau spilli ekki næstu bræðslu með þráa eða óhreinindum. Sú uppgötvun er tiltölulega ný, að bræða lifrina við lágan hita í loftþéttum hylkjum, en lýsi það, sem þannig er framleitt skarar fram úr um bragð og lit. Skýrala um framleiðsluna. Framleiðendur ættu að kynna sér vel

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.