Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1926, Blaðsíða 15

Ægir - 01.01.1926, Blaðsíða 15
ÆGIR 7 5. Hafnarbœtur á Hornafirdi. Svo hljóðandi tillaga var borin upp og samþykt: »FjórðungsþÍDgið ítrekar fyrii meðmæli sín með framkvæmd kafnarbóta á Horna- firði og beinir því til fulitrúa fjórðungsins að flytja það mál á fiskiþinginu«. 6. Samgöngur. Svohljóðandi tillaga borin upp og sam- þykt: »í tilefni af því, að nú á seinni tímum er þannig komið útvegsmálum Austfirðinga, að þeir verða að flytja sig til með útveg sinn eftir vertíðum, ýmist til Hornafjarðar eða norður til Skála og Raufarhafnar, tel- ur Fjórðungsþingið því að nauðsynlegt sé að bæta samgöngur að miklum mun á þessu svæði, einkum á vissum tímum — enda margar óskir komið í þá ált — en hinsvegar miklum og margvíslegum öið- ugleikum bundið með alla aðdrætti. — Fjórðungsþingið vill því skora á fiskiþingið að það beiti ábrifum sínum við alþingi um, að það veili riflegan styrk til samgöngu- bóta á þessu svæði og biýn nauðsyn væri á því, að samgöngunum yrði komið sem allra fyrst í fast form í líkingu við það, sem tíðkast á öðrum slöðum, svo sem við Faxaflóa og ísafjarðardjúp«. Að þessu loknu var fundi frestað til næsta dags. Fundur settur aftur 12. desember kl. 1 e. h. og þá lekið fyrir: 7. Fiskiveiðatilraunir. Eftir nokkrar umræður var borin fram svohljóðandi tillaga og hún samþykt með öllum greiddum atkvæðum. — »Fjórðungsþingið skorar á fiskiþingið og stjórn Fiskifélags íslands að beita sér lyrir því við alþingi að á næstu árum veiði veitt ríflegt íé úr ríkissjóði til fiski- veiðatilrauna. — 1. Leitað sé nýrra fiskimiða og reyndar séu nýjar veiðiaðferðir með veiðarfær- um sem eigi eða lítið hafa áður verið notuð á þeim svæðum, þar, sem til- raunirnar fara fram. — 2. Að rannsakað verði hverskonar út- vegur muni verða arðvænlegaslur i hverjum landshluta eða útvegsstað. — 3. Að rannsakað verði, bvoit eigi er unt með bæltu fyrirkomulagi að reka þenna útveg, sem við höfum, með minni áhæltu og meiri arði en nú er. 4. Að tilraunum þessum og rannsóknum loknum. verði gerðar tillögar um breyt- ingu eftir því sem álitið yrði heppi- legast fyrir útveginn«. Ennfremur var samþykt eftiifarandi lil- laga í sama máli. — Fjórðungsþingið leyfir sér að fara þess á leit við Fiskiþingið að það: — 1. Rannsaki hvort fáanlegur muni vera markaður utanlands fyrir hákarl og hákarlsskráp og hvernig heppilegast sé að verka þessar tegundir fyrir markaðinn. — 2. Rannsakað verði hvort fáanlegur muni vera arðvænlegur markaður utanlands fyrir smáufsa í einhverju ástandi og hvernig heppilegast væri þá að verka ufsann fyrir slíkan markað«. — Rá var tekið fyrir næst: 8 Vélgœzla á mátorskipum. t því máli var borin fram svohljóðandi tillaga og var hún samþykt. — Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið að beita sér fyrir þvi, að hert verði inntöku- skilyrði þau, sem sett eru í reglugjörð fyrir námskeið Fiskifélags íslands í mótor- vélfræði og leyfir sér að benda á, að sett verði einnig þau skilyrði fyrir inntöku á námskeiðið, að umsækjandi hafi áður stund-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.