Ægir - 01.01.1926, Síða 16
8
ÆGIR
að vélgæzlu að einhveiju leyti, eða að
minsta kosti hafi verið einhvern tíma á
mótorbát eða skipi.«
Pá var næst tekið fyrir næsta mál:
9. Vitainál.
Nefndin í því máli bar upp svohljóð-
andi tillögur, sem voru samþyktar með
öllum greiddum atkvæðum eftir langar og
ítarlegar umræður:
sFjórðungsþingið skorar á fiskiþingið að
leitast fyrir því við vitamálastjórn landsins
og Alþingi:
1. Að öllu vitagjaldinu sé árlega várið
til byggingu nýrra vita. —
2. Að vitabygging ásamt þokulúðri á
Seley, verði látin ganga fyrir öðrum
vitabyggingum landsins næst á eftir
Portlandsvita.
3. Að rannsökuð verði bygging vita á
Geirfuglaskeri (Hvalbak) þegar á næsta
sumri.
4. Að rannsakað verði hvort ekki er til-
tækilegt að setja hljóðbendingaáhald á
Færabak.
5. Að athugað verði hvort nokkuð er því
til hindrunar að breylt verði Hvaun-
eyjarvita þannig að hann sýni grænt
ljós yfir Hvanneyjarskercr.
10. Bókaútgáfa fiski/éfagsins.
Bornar voru upp svohljóðandi tillögur
og samþyktar:
»Að í sjómannaalmanakið verði prentuð
skrá yfir lög þau sem í gildi eru og sér-
staklega varða sjómenn og sjávarútveg og
sé þess getið í skránni hver lög og hverjar
reglugerðir eigi að vera í skipum.«
»Að í almanakinu sé getið árlega laga-
breytinga er varða sjávarútveg og atvinnu
sjómanna. Einnig sé getið helstu bjarg-
ráða og aðrar Ieiðbeiningar séu þar er að
gagni geta orðið sjófarendum«.
»Að gefin verði út á íslensku eins fljótt
og unt er leiösögubók fyrir sjómenn í lik-
ingu við »Islands Lods«.
Tillaga frá sömu nefnd:
»F’areð sjómannaalmanakið fyrir 1926
hefir enn eigi verið sent til margra helstu
veiðistöðva hér Austanlands, þá átelur
Fjórðungsþingið drált þann er á sending-
unni hefir orðið og skorar á stjórn Fiski-
félagsins að sjá um það, að framvegis verði
almanökin send lil helstu veiðistöðva
landsins jafnskjótt cg þau koma út.«
11. Útbreiðsla Fiskifélagsins.
Svohljóðandi tillaga var borin upp og
samþykt í einu hljóði:
»Þareð sýnilegt er að dofnað hefir yfir
Fiskifélagsdeildum hér Austanlands á seinni
árum, en hinsvegar er full-ljóst, hve afar-
áríðandi er, að einmitt þessi félagsskapur
geli starfað með sem mestu fjöri og áhuga
að sameiginlegum málum sjómanna, sem
öll lífsskilyrði alls almennings á félags-
svæðinu eru bundin við að meira eða
minna leyti, þá vill Fjórðungsþingið hér
með skora á væntanlega stjórn og erind-
reka félagsins, að beila sér með meiri
festu og áhuga en verið hefir, til vakning-
ar og uppörfunar á félagssvæðinu. Sérstak-
lega vill Fjórðungsþingið skora á erind-
rekann að ferðast meira um félagssvæðið
og til nýrra staða, sem engar deiidir eru
fyrir, til fundarhalda, sem skýri þau á-
hugamál, sem í hvert sinn eru efst á
baugi«.
Að þessu loknu var gengið til kosningu
um fulltrúa og varafulllrúa á fiskiþingið
fyrir Austfirðingufjórðung, þessir blulu
kosningu:
Hermann Þorsteinsson með 7 atlcv.
Stefán P. Jakobsson með 4 atkv.
Sem varafulltrúar voru kosnir:
Marteinn Porsteinsson með 7 atkv.
lngvar Pálmason með 6 atkv.