Ægir - 01.01.1926, Side 22
14
ÆGIR
Skýrsla
yfir Rfla á Austurlandi árið 1925.
Verslöðvar. Málf. Smáf. Ýsa Keila og ufsi
skpd. skpd. skpd skpd.
Hornafjörður 1809 507 23 47
Berufjörður 619 276 » »
Stöðvarfjörður 260 872 8 »
Fáskrúðsfjörður 1615 3192 28 ))
Hafranes 411 1032 32 ))
Reyðarfjörður ... ... 20S 202 » »
Eskifjörður 398 521 )) »
Breiðuvík 373 632 4 ))
Norðfjörður 2680 3269 » ))
Mjóifjörður 129 713 » »
Seyðisfjörður 1553 1843 )) ))
Borgarfjörður 146 864 » »
Vopnafjörður 52 192 )) »
Bakkafjörður 190 544 )) »
Gunnólfsvík 30 70 )) »
Skálar 506 1119 20 »
Samtals ... 10929 15848 115 47
F'iskurinn er talinn í skpd. í verkuðu ástandi. Hér
með er ekki talin aðkeyptur fiskur af erlendum skip-
um, heldur að eins fiskur, sem afiast hefir á heim-
ilisfasta báta og skip.
hafsíld er gengin, en að hinu leytinu ó-
sannað mál, hvort ekki muni þar smá-
sí!d eða loðna fáanleg framan af sumri.
Pá er tiltölulega mjög skamt að sækja
á miðin, stundum ekki ncma klukkustund-
arferð á vélbátum, og í sumar bar það til
að árahátar réru tvívegis sama daginn,
enda var veðrátta mjög hagstæð. — Yfir
höfuð leisl mér mjög vel á aðstæður þar
eystra og nokkurn áhuga hafa
Raufarhafnarbúar á fiskiveiða-
málum, sem að líkindum lætur,
og mín skoðun er sú, að þir sé
um all-veigamikla framtíðarver-
stöð að ræða, ef fiskigöngur
breytast ekki frá þvi, sem nú
virðast vera.
Á Raufarhöfn var í haust
stofnuð fiskifélagsdeild, sam-
kvæmt áskorun minni og til-
mælum.
Á Siglufirði var og endurreist
deild, en fámenn er hún enn
þá, en ekki ólíklegt að með-
limum fjölgi er fram líða stundir.
Reyndar er þess að gæta, að
þólt Siglufjörður sé stærsta veiði-
stöðin að sumrinu, ekki ein-
ungis hvað síld snertir, heldur
einnig þorskveiðar, þá er meiri
hluti bátanna, sem þaðan ganga,
aðkomandi úr ýmsum stöðum
og fólkið, sem á þeim vinnur
heimilisfast utan Siglufjarðar.
Eg átti nú alveg nýlega símtal
við deildarformanninn þar, út
af námsskeiði og fleiru, og kvað
hann þá vera komna 12 um-
sækjendur, svo teija má víst að
námsskeiðið komist á, og mun
þá byrja seinnipart janúar næst-
koirandi, að afloknu náms-
skeiði því, sem nú stendur yfir á
Akureyri og virðist fara vel fram.
Um síldveiðarnar á Siglufirði og annar-
staðar er fyrir löngu orðið kunnugt, svo
eg leiði hjá mér að minnast á þær hér,
en mun leiða mál að þeim i þessa árs
lokaskýrslu, sem eg geri ráð fyrir, að
verði birt í »Ægi«, ef stjórn Fiskifélags-
ins sýnist svo. — Um þorskveiðarnar á
Siglufirði er það að segja, að þær gengu
með allra besta móti í sumar, t. d. fékk