Ægir - 01.01.1926, Page 23
ÆCiIR
15
FiskaHi á öllu landinu 1. febrúar 10ð(>.
Veiðistöðvar, Slórfiskur Sináfiskur Ysa Ufsi Samtals.
Sandgerði 495 12 24 531
Hafnarfjörður 44 2 4 50
Reykjavik 803 43 58 1 995
Akranes 220 » » 220
Sunnlendinga/jórdiingur ... 1,652 57 86 1 1,796
Veslfirdinga/jórðungnr 949 188 43 153 1,333
Samtals ... 2,601 245 129 154 3,129
aílahæsti báturinn þar 412 skpd. af fiski,
og 150 tn. af síld eina viku, sem hann
gekk með reknet. Báturinn er ca 11 tonn
á stærö. Aflalægsti báturinn þar, mun hafa
fengið um 230 skpd, enda var vél þess
báts æðilengi í ólagi. Úr hinum veiðistöðv-
unum eru engar sériegar fréttir. — Alment
var beituskortur mestallan júní, svo sem
eg hefi áður minst á, en alt um það má
aflinn að öllu samtöldu teljast góður, eink-
um ef þess er gætt, að fjöldinn allur af
vélbátum gáfu sig að einhverju leyti við
síldveiði og sumir alfarið eftir miðjan júlí.
Fundi hefi eg haldið i flestum deildum
og alstaðar þar sem hægt var að konia því
við. — A fundunum voru rædd flest þau
mál, sem deildirnar í heild og hverja ein-
staka deild varða, en almennastar og yfir-
gripsmestar umræður urðu um stofnun
vélbátaábyrgðarfélags, sem væntanlega er
nú komið það langt, að telja megi vist,
að félag þelta verði slofnað upp úr nýár-
inu, enda sannast sagt, er nú tími til-
kominn eftir allar þær bollaleggingar, sem
um það hafa orðið síðuslu árin, og alt
það vafstur og fyrirhöfn, sem eg hefi ált í
út af því máli.
Þá óska Raufarhafnarbúar og Skag-
strendingar mikillega eftir leiðarljósslýru,
hver hjá sér og kom það mál fyrir á ný-
afstöðnu Fjórðungsþingi.
Starfsemi mín hefir liðandi ár verið á
svipaðan hált og undanfarið, og þó hægt
miði áfram, hefir það komið berlega í
ljós hjá deildum og fiskimönnum, að þeir
telja stefnu og athafnir Fiskifélagsins góða
og nauðsynlega og vænta sér trausls og
halds hjá því, enda er þangað snúið beiðn-
um þeirra og umkvörtunum í flestum at-
riðum, eins og líka á að vera, en hins-
vegar er mönnum ljóst, að aukið fjármagn
þarf til þess að geta sint þeim málum, svo
sem þarf og vera ætti.
Með þessari skýrslu legg eg eflirfarandi
plögg, áhrærandi starf mitt.
1. Skrá um fiskideildir, formenn þeirra
og félagatal og skattgreiðslur.
í sambandi við þelta vil eg geta
þess, að fyrir nokkru ítrekaði eg á-
skorun mina við Sauðkræklinga um
að blása nýjum anda í nasir deildar-
arinnar þar, og lofaði hr. Sigurgeir
Danielsson hreppstjóri mér, að kalla
saman fund í því skyni, og lét hann
i Ijósi, að sér þætti líklegt að þelta
mundi takast. — Hann er góður mað-
ur og gegn, útgerðarmaður, og auk
þess vel metinn af öllum þar veslra.