Ægir - 01.01.1926, Blaðsíða 27
ÆGIR
19
Önundarfirði. Flulti hann fisk þeirra til
Grimsby í lok september. Urðu það alls nær
1200 körfur og seldist aflinn fyrir 717 ster-
lingspund.
Kunnugur maður hefir tjáð mér, að veiði-
túr „lsleifs“ og jafnvel „Hafþórs“ hafi borgað
sig. „Fróði“ og smærri vélbátarnir öfluðu
allir miður, og varð allmikið tap á þessum
veiðitúr þeirra, og útgerðinni yfir höfuð.
En þess er líka að gæta, að afíinn seldist
mjög illa í samanburði við venjulega ís-
fiskssölu togaranna. Verður því ekkert dæmt
um það af þessari tilraun, hvort framhald
værður á svona ísfiskssendingum. Hefir
mönnum hér oft áður kornið til hugar, að
leigja skip í þessu skyni, líkt og „Víking“
nú. Gerðu Bíldudals-bræður fyrst tilraun í
þessa átt í fyrrahaust, en ekki er mér ger-
kunnugt um niðurstöðuna af þeirri för. Virð-
ist einmitt haga vel til að senda ísvarinn
fisk á þennan hátt úr veiðistöðvunum hér
nærlendis í september og október. P>á er
venjulega mestmegnis um smáfisk og ýsu
að ræða, sem bæði er langtum verðminni
en stærri fiskur og rýrnar mjög í salti.
Auðvitað fæst að jafnaði hverfandi lítið af
smálúðu og kola á færi og lóðir, en það er
verðmesti ísfiskurinn. En oft er og ágætt
verð á þorski og ýsu. Þegar saman fer fremur
lélegur afli og illa tekst til með sölu, þá
er ekki hagnaðar að vænta.
Þess hefir ekki áður verið getið í skýrslum
héðan úr fjórðungnum, að tilraunir með veiði
í þorskanet haía verið gerðar á Dýrafirði
undanfarin ár. Þorbergur Steinsson, fyrrum
skipstjóri á Þingeyri byrjaði á veiðitilraunum
þessum ásarnt öðrum manni, og hefir hann
látið mér í té upplýsingar um þær.
Fyrstu net þeirra félaga voru úr síldar-
garni, 11 möskva djúp með 3" riðli. Neta-
slangan 100 faðmar og „sett inn“ um rúman
þriðjung. Þrjár korkflár höfðu þeir á faðmi
hverjum, 3 x 1' 2 þuml. — Byrjað var að leggja
netin þar í fjörðinn í júlí, og veiðum haldið
áfram til veturnátta. í júlí og fyrri hluta
ágústmánaðar segir Þorbergur að oftast hafi
fengist 5—10 fiskar á dag, en veiðin tók
að glæðast, er dimdi af nóttu
Árið eftir juku þeir ofurlitlu við netin.
Byrjuðu þá veiðar í júlí og héldu áfram þar
til í nóvember. Öfluðu þeir þá betur, fengu
nægan soðmat fyrir heimili sín og seldu
fisk fyrir um 300 kr.
Síðan hafa fleiri Þingeyringar farað að
dæmi þeirra Þorbergs. Eru þeir nú teknir
að nota gildara garn og hafa netin 16 möskva
djúp. Afli hefir verið tregur á Dýrafirði und-
anfarin ár. Þó fengust 100 fiskar í 6 veiði-
ferðum í 100 faðma net s. 1. ár. Fiskurinn,
sem fengist hefir í netin, er mest vænn þorsk-
ur, nokkuð af ýsu og stöku sinnum hafa feng-
ist lúður o. fl. Netin hafa verið lögð á 16
til 20 faðma dýpi víðs vegar um innri hluta
Dýrafjarðar. Togarar hafa nokkrum sinnum
sópað netunum burtu, og hefir það að sögn
eigi fengist bætt, énda eigi liægt að vita,
hver framið hefir.
Þessar netaveiðar Dýrfirðinga hafa verið
algert hjáverk og í því skyni að afla fiskjar
til heimilisnotkunar. Kunnugur maður hefir
tjáð mér, að 2 menn á báti myndu geta
annað því, að hafa 4—500 faðma af netum
daglega. Dýrafjörður er ekki talinn fiskisæll
fjörður, sízt að innanverðu. Og fáist að jafn-
aði 10 fiskar í 80—100 faðma net þar, mætti
gera sér fullar vonir um að tvöfalt meiri
veiði fengist á fiskauðugri fjörðum.
Nú er einmitt tími til að íhuga það vand-
lega, hvort eigi megi koma við þorskneta-
veiðum víðar en þær eru enn stundaðar.
Lóðaveiðar eru nú orðnar stopular og afar
dýrar. Þær verstöðyar, sem mest var bygt
á áður fyrri, bregðast nú iðulega, t. d. Bol-
ungavík. Beitukostnaður fer sífelt vaxandi
og skelfisknámurnar ganga óðum til þurðar,
en um aðra beitu er ekki að ræða á vor-
vertíðinni hér vestra, þegar vörpusíld fæst
eigi. Alt þetta er sterk hvatning til að reyna
fleiri veiðiaðferðir en þær, sem enn þá eru
stundaðar hér vestra.
1 september og októbermán. hélt ég fundi í
deildunum á Suðureyri, Flateyri, Hnífsdal
og Bolungavík. Svo voru og haldnir tveir
fundir í deildinni hér í bænum áður en
fjórðungsþingið kom saman. Umræöuefnin
á fundum þessum voru aðallega mál þau,
er siöar voru tekin fyrir á fjórðungsþing-
inu 5. nóvember s. 1. (Sbr. 11. blað „Ægis“
f. á.). Skal ég drepa á hin helztu þeirra.
Fiskisýning. I öllum deildunum voru menn
fylgjandi því, að efna beri til myndarlegrar
fiskisýningar nú á næstu árum. Helzt er
hallast að því, að halda sýninguna í sam-
bandi við væntanleg hátíðahöld á 1000 ára
afnræli Alþingis árið 1930. Öllum er það
ljóst, að slík sýning kostar mikið fé og