Ægir - 01.04.1931, Qupperneq 16
86
ÆGIR
lög, sem fiskimenn hafa myndað í þess-
um löndum, til að auka álit og verðmæti
afurða sinna« — »að rannsaka nákvæm-
lega að hvaða notum slíkur félagsskap-
ur hefur orðið í hverju tilfelli«. Sömu-
leiðis var honum falið að kynna sér ann-
an samvinnufélagsskap fiskimanna, bæði
á verzlunar og iðnaðarsviðinu, og eftir
heimkomu sína að gera iillögur um þá
samvinnu meðal fiskimanna hér, er hann
teldi æskilega og hér mætti að notum
koma.
Það má því einmitt gera ráð fyrir, að
»frumvarp« þetta sé byggt á reynzlu ann-
ara þjóða, þó að það af einhverri dul-
arfullri tilviljun, sé nokkuð líkt orðað og
lög og reglur Samvinnufélags ísfirðinga.
K. B.
Verzlunarráðuneytið í Osló tilkynnir
31. janúar þ. á.:
1 dag hefur ráðuneytið gert svofeldar
breytingar á reglugerð þeirri um fram-
leiðslu, meðferð, sölu og útflutning á
meðalalýsi, sem gefin var af ríkiserfingj-
anum i fjarveru konungsins 20. des. 1929.
Breytingar þessar gilda frá og með 1.
marz 1931.
Neðantaldar greinir hljóða sem hér
segir:
§ 10. Þegar lifur er keypt, eða henni
safnað frá fiskiskipi eða öðru skipi, má hún
ekki vera laus, er henni er rennt úr skipi
í bát eða annað rúm í skipi, ei heldur
má flytja hana lausa í bát eða farmrúmi
skips, heldur skal hún flutt i hreinum
tunnum, stömpum eða kössum. Bannað
er að verka lifur sem meðalalýsi, sem
eigi hefur sætt þeirri meðferð, sem hér
á undan er tiltekið.
§ 11. Tunnur, stampar eða kassar, sem
notaðir eru undir lifur, verður að þvo
úr fersku vatni og bursta þá upp úrvatni,
einusinni á sólarhring þann tíma, sem
þeir eru notaðir. Gólf í lifrárbræðsluhús-
um, tómar tunnur og aðrar umbúðirut-
an um lifur verður að vera þvegið og
hreint, þegar vinna hættir hvern dag.
§ 12. Áður en lifur er gufubrædd, verð-
ur vel að gæta þess, að hvergi hangivið
hana gallblaðra. Auk þess verður að þvo
þá lifur í tæru vatni, sem er úr fiski,
sem veiddur er á tímabilinu 1. maí til
30. september og úr fiski, sem verið hef-
ur i rauðátu (calanus Finmarkicus).
Lifur, sem farin er að þrána, má ekki
nota til að framleiða gufubrætt meðala-
lýsi.
Burmeister & Wain. Á skipasmiða-
stöð þeirra í Kaupmannahöfn eru ísmíð-
um tvö stór skip og þau að mestu til-
búin að hlaupa afstokkunum.
Hjá þeim eru auk þess pöntuð eftir-
töld skip :
1 mótorskip 8.500 tons fyrir Fearnley
og Eger í Oslo.
1 mótorskip 8.000 tons fyrir Myren í
Kaupmannahöfn.
1 mótorskip 12.000 tons fyrir Austur-
Asíufélagið.
2 mótorskip 8.000 tons hvort fyrir Lund
& Co. Tönsberg.
1 mótorskip 8.000 tons fyrir fél. Odd-
fjeld í Bergen.
1 gufuskip 8 000 tons fyrir Corona í
Haugasundi.
1 gufuskip 8.500 tons fyrir félagið Jöl-
und i Oslo.
1 mótorskip 8.000 tons fyrir Bernhard
Hansen i Tönsberg.
1 mótorskip 12.000 tons fyrir Myren í
Kaupmannahöfn.
1 mótorskip 10.000 tons fyrir fél. Ara-
mis i Oslo.
1 mótorskip 10.000 tons fyrir Brövik
í Oslo.