Ægir - 01.11.1931, Page 1
Nr. 11.
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS.
24. árg. |j Reykjavik. — Nóv. 1931. I
Skýrsla frá fiskifulltrúanum
á Spáni.
Dags. 24. október 1931.
Vegna þess að ég verð að leggja af
stað í fyrramálið, til þess að hitta Bier-
ing, danska sendiherrann í Belgrað, get
ég því miður ekki skrifað svo greinilega
sem ég hefði óskað, um siðustu ferð mína
til Bilbao, Vigo og Portúgal.
Til Bilbao kom nú enginn fiskur frá
íslandi öðruvísi en í umboðssölu með
vissri fyrirframgreiðslu. Almennust fyrir-
framgreiðsla á þeim fiski, sem var á leið-
inni til Bilbao, þegar ég var þar, mun
hafa verið 21 sb. (pr. 50 kg. og af stærð-
inni: ekki yfir 32 fiskar í pakka). Af
smærri fiski (millifiski), var fyrirfram-
greiðslan 3—4 sh. lægri. En siðuslu söl-
urnar munu hafa verið með 20 ogjafn-
vel 19 sh. fyrirframgreiðslu.
Færeyjafiskurinn var sömuleiðis seld-
ur í umboðssölu og munu síðustu til-
boðin frá Færeyjum hafa verið með fyr-
irframgreiðslu allt ofan i 18 sh. Þrátt
fyrir þetta lága verð var eftirspurnin lít-
il, þó rétt væri komið að mesta salt-
fisksneyzlutímannm á þeim stöðum á
Norður- og Miðspáni, sem mest kaupa
lrá Bilbao. Og aðalástæðan til þess var
sú, að menn bjuggust við enn frekari
verðlækkun á fiskinum vegna hinna stöð-
ugt lækkandi tilboða frá Islandi og Fær-
eyjum.
Pegar þetta er skrifað, er mér sagt að
heildsöluverðið í Bilbao á nr. 1 fiski frá
Islandi (32 fisk um í pk.) sé 85 pesetar.
Miðað við 43,50 peseta gengi á £ pund-
inu og allan kostnað (toll, flutning, 5°/o
umboðslaun og annað), sem ég reikna
ca. 36 peseta á pk., samsvarar þetta heild-
söluverð 22,6 cif-verði. 85 peseta útsölu-
verð er það lágt verð, að óþarft og til-
gangslaust væri að hafa það lægra. Peir
sem á annað borð hafa ráð á að borða
saltfisk, geta jafnt borgað þetta verð og
80 eða 75 peseta. Peir allra fátækustu
koma hér ekki til greina, því þeir hafa
ekki ráð á að borða saltfisk fyr en hann
þá kæmi ofan i verð, sem samsvaraði 40
—50 peseta heildsöluverði.
Hvað mat og gæði ísl. fiskjarins snert-
ir, þá er hvorugt enn í því lagi, sem
skyldi. Og þó engar kvartanir hafi átt
sér stað yfir þessa árs fiskinum íslenzka,
þá stafar það ekki af því, að innflytj-
endum hafi þótt fiskurinn óaðfinnanleg-
ur, heldur af því, að þeir hafa fengið
hann í umboðssölu og þeir þá sjálfir
ekki orðið fyrir neinu tjóni, þó fiskur-
inn hafi reynzt öðruvísi en ætlað var og
matsvottorðin sýndu. Þannig var mér
sýndur fiskur, sem vottaður var 7/s verk-
aður, og annar úr sama umdæmi, sem
vottaður var fullverkaður. Sá 7/« verkaði
var harðari en hinn. Svona hlutir vekja
nú ekki traust á matinu okkar.
Viðvikjandi þurkstigi fiskjar handa Bil-
bao er það að segja, að menn eru meir
og meir að hverfa frá fullverkuninni.
Færeyjafiskurinn er, sem kunnugt er oft-