Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 8

Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 8
218 ÆGIR Iívarnir úr ýmsum fiskiseiðum úr langvíu-fóarni. Að eins lítill hluti af öllum kvörnunum i fóarninu (stækkað sjö sinnum). hluta af þessum þunga, þarf vitanlega miklu fleiri til þess að seðja hvern fugl. Um miðjan júní fara ungarnir að koma úr eggjunum, og því er matarþörfin mikil, einmitt um það leyti. Ef gert er ráð fyrir, að i Látrabjargi einu séu 50,000 svart- fuglar, sem ugglaust er mörgum sinnum of lítið, og hver fugl eti 500 þorsk- og ýsuseiði á dag, þurfa fuglarnir í Látra- bjarai 750 miljónir seiða sér til viður- væris á einum mánuði. Ef öll þessi seiði hefðu lifað og náð að þroskast til fimm ára aldurs mun það láta nærri að þau hefðu þá vegið 1500 milljónir kilóa, eða um 6 sinnum meira en allur þorsk- og ýsuafli allra þjóða við ísland nam árið 1922. Svona mikið borðar svartfuglinn í Látrabjargi einu á einum mánuði að minnsta kosti. Eftir þessu að dæma, lít- ur út fyrir að svartfuglinn sémestafarg- an fyrir útveginn, og skulum við nú at- huga hvort svo er. Eftir útreikningumdr. Bjarna Sæmundssonar, nægia 3—4 þorskar (6—8 ára) til þess að fylla upp í skarðið, á móti öllu því, sem veitl er hér við land yfirleitt, ef gert er ráð fyrir að árlega náist 18 milljónir af þroskuðum þorski. Af þessu sézt hve gifurlega mikil við koma er, og hve litlu það í raun- inni nemur, þótt svartfuglinn þynni fylkingarnar. Það er ekki hægt að segja neitt um það, hve mikið af svartfugli er við ísland, en veið- in er frá 50—110 þús á ári. Ef gert er ráð fyrir að veiðist jafn- aðarlega 2°/o af öllum svartfugli, og þaðséu 100 þús. á ári, þá ættu að vera 5 millj. af svartfugli við tsland. Ef hver fugl etur 500 þorskseiði á dag, i tvo mánuði, eða 30 þús. stk. samtals, ættu allir svart- fugl ar að eta 150 miljarða þorskseiða á ári, en eftir út reikningum dr. Bjarna Sæm- undssonar, koma að minnsta kosti 24 bill- jónir þorskeggja í heiminn hér við land á ári, svo allt það, sem svartfuglinn etur, nemur ekki líkt því einum hundraðasta hluta af allri viðkomunni. Hvað þorskinn snertir, er þvi auðsætt, að svartfuglinn gerir veiðinni engan miska, öðru nær. Annað mál er það, bvort hann vinnur skarkolaveiðunum og ýsuveiðunum tjón. því þessum fiskum er aðsjáanlega að fækka vegna veiðanna, en þorkinum og sildinni fækkar ekkert, hvernig sem veitt er. Til þess að kom- ast fyrir um, hvort svartfuglinn rýrir t. d. ýsustofninn með því að eyða seiðun- um, svo um muni, þarf að gera ýtarleg- ar rannsóknir á fæðu svartfuglsins, allan ársins hring, og auk þess reyna að finna hve mikið er af svartfugli við landið.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.