Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 18

Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 18
228 ÆGIR fram og forðast að keppa á nokkurn hátt við sendendur eða kaupendur þess tisks, sem honum er trúað fyrir og sýnt það i öllu, að hann hefur breytt við við- skiptamenn sína eins og hann óskar að þeir breyti við sig. Fyrir skömmu sæmdi konungur Krist- ján tíundi hr. Salomonsen, riddarakrossi Dannebrogsorðunnar, sem viðkurkenn- ingu fyrir starf hans í þágu fiskiveiða Dana. (Fish Trades Gazette 10. okt. 1931). Togarinn „Leiknir” strandar við Kúðaós. Mannbjörg. Fyrir fám dögum barst hingað sú fregn, að togarinn »Leiknir« frá Patreksfirði hefði hefði strandað við Kúðaós, fram af Álftaveri. Fregn þessi hafði borist með loftskeyti frá togaranum, og hafði Loftskeytastöð- in í Reykjavik náð fregninni. Yar sýslu- manninum í Skaftafellssýsln þegar til- kynnt um strandið, en hann gerði ráð- stafanir til þess, að Álftveringar færu á strandstaðinn. Þeir voru komnir á strand- staðinn kl. 9—10. Loftskeytastöðin hér í bænum hafði samband við »Leikni« til kl. 2; taldi skipstjóri víst, að skipverjar kæmust allir í land með fjöru. Kl. um 1 voru 6skip- verjar komnir á land. Aðstandendur skipverja voru mjög á- hyggjufullir er ekkert fréttist siðari hluta dags en áður dimma tók, fréttist aðallir væru komnir á land. Þau fara að verða nokkuð mörg slys- in á sjó og haldi þau áfram líkt og hin siðustu 6 ár, má eiga það víst, að er- lendu félögin, sem endurtryggja skaða hér, hækki svo iðgjöld að til vandræða horfi fyrir skipaeigendur. Sjótjón hin síðustu 6 ár eru þessi og að eins nefndir togarar: »Leifur heppni« 8. febr. 1925. Fórst á rúmsjó. »Ása« 20. des. 1925. Við Jökul. ' »Eirikur rauði« 2. marz 1927. ViðSand- ana. »Ása« 3. apríl 1927. Við Grindavik. »Austri« 7. septbr. 1927. Við Vatnsnes nyrðra. »Jón forseti« 27. febr. 1928. Við Stafnes. »Menja« 12. júní 1928. Sökk á rúmsjó. »Apríl« 1. des. 1930. Fórst á rúmsjó. »Barðinn« 21. ágúst 1931. Við Þjót. »Leiknir« 21. nóvbr. Við Kúðaós. Þannig lítur þessi sorglegi listi út. Frá 1. desbr. 1930 til 21. nóv. 1931, er tæpt ár og á því farast 3 dýr skip — og 10 togarar, sumir að heita nýir, síðan árið 1925. Hið síðasta strand, »Leiknis« er órann- sakað er Ægir verður prentaður, en 23. nóvbr. sendi Sjóvátryggingarfélag lslands reyndan skipstjóra, austur á strandstað- inn og varðskipið »Ægir« mun gera tilraun til að ná skipinu út. Sjóréttur var haldinn í Vík í Mýrdal hinn 24. nóvbr. og framhaldspróf mun haldið hér í Reykja- vik. Á þrem mánuðum hafa 2 togarar strandað, sem vátryggðir hafa verið bjá Sjóvátryggingarfélagi Islands fyrir um 600 þúsund krónur. »Leiknir« var smíðaður í þýzkalandi árið 1921 fyrir hlutafélagið Sleipni í Reykjavík, og hét fyrst »Glaður«. Var hann 316 smálestir brúttó. Fyrir nokkr- um árum seldi Sleipnir skipið, ólafi Jó- hannessyni & Co. i Patreksfirði, og hef- ur það síðan verið gert út þaðan.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.