Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 2

Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 2
212 ÆGIR ast nær að eins 7/8 verkaður og selst hann í sjálfri Bilbao ávalt nokkru hærra verði en sá íslenzki. Inni í landinu þykir íslenzki fiskurinn geymast betur en sá færeyski, vegna þess að hann sé meir þurkaður, en sá færeyski þykir þar fall- egri líka. Hygg ég að mér sé óhætt að fullyrða, að mátulegasta þurkstigið, sem við getum haft á okkar flski handa Bil- bao-markaðinum sé nú hörð 7/s verkun á þeim fiski sem fara áinn i landið og 7/8 verkun á þeim, sem á að seljast í sjálfri Bilbao (en sem enn þá er tiltölu- lega lítið vegna Færeyjafiskjarins). í Vigo ryður isl. fiskurinn sér meir og meir til rúms á kostnað hins norska. Ekki megum við enn sem komið er, lina neitt á þurkuninni handa Vigo.held- ar hafa hana eins og áður, þ. e. a. s. eins og handa Portúgal. Þar sem Vigo- menn eru vanir hinni góðu stærðaflokk- un frá Noregi, kvarta þeir ávalt yfir því, að misjafnar fiskastærðir séu í pakka þegar um ísl. fisk er að ræða. Vegna *opnun credita« og kaupa á er- lendum gjaldeyri, létu innflytjendur þess getið, að þeim kæmi mjög vel, að þeim væru alltaf send 2 afrit af reikningun- um yfir fiskinn og 1 afril af farmskír- teinunum. I Portúgal hefur eins og mönnum mun kunnugt, innflutningurinn á ísl. fiski aukist afar mikið á þessu ári. í fyrra og árið þar áður var innflutningurinn kringum 5000 tonn hvort árið, en í ár mun vera búið að selja þangað 10000 tonn (kringum 8000 til Oporto og 2000 til Lissabon). Hefir þetta nær eingöngu gengið út yfir norska fiskinn og stafar að mestu leyti af hinum afarmikla verð- mun, sem að mínu áliti hefur verið ó- þarfiega mikill. Norðmenn hafa lengst af í sumar haldið sínum þessa árs fiski í 31—32 sh., en við selt á sama tíma fyr- ir 23—24 sb., þ. e. a. s. selt okkar fisk fyrir likt verð og Norðmenn hafa selt sinn gamla, jarðslegna fisk. Þegar égvar í Portúgal var nýbúið að selja þangað mjög mikið af ísl. fiski fyrir 20- 21 sh. (nr. 1 og 2 saman) og höfðu Norðmenn þó ekki lækkað sitt verð neitt að ráði, ekki farið niður úr 30 sh. (fyrir nr. 2). Nær því allir, sem ég átti tal við um þetta, töldu að við myndum hafa selt jafnmikið þó við hefðum selt fyrir 24— 25 sh. í stað 20—21 (21/- fyrir stærðina 40—50 og 20/- fyrir 50—60 fiska í 60 kg. pakka). Lága verðið því að kenna innbyrðis samkeppni þeirra, er isl. fisk selja og bjóða og umboðsmönnum þeirra. Þegar ég var í Portúgal var búið að selja þangað svo mikið af ísl. fiski, að ég tel ekki muni hægt að selja þangað meir fyrir jól en sem svarar 10000 pk. í hæsta lagi fyrir hvorn staðinn Oporto og Lissabon. Þegar þetta bréf kemur heim, mun ef til vill búið að selja þetta, en hvort sem það er gert eða ekki, teldi ég réttast að hækka verðið upp í 22 sh. þ. e. a. s. ef að Norðmenn hafa ekki þá farið niður úr þeim 28 sh., sem ég veit að var þeirra allra lægsta verð, þegar ég var að fara frá Lissabon. Um þurkstigið handa Portúgal er það að segja, að alls ekki má kvika frá því þurkstigi, sem ákveðið hefur verið heima að hæfði Porúgal. 1 Oporto sá ég ísl. fisk pakkaðan i 60 kg. pakka og vottað- an Spánarmetinn, fullverkaðan. Pessi fiskur var auðvitað oflinur fyrir Portú- gal, þó rétt væri metinn fyrir Spán, og spillir þar áliti isl. fiskjarins, því smá- salarnir vita ekki, að þessi fiskur var ekki metinn fyrir Portúgal. Þegar fiskur er pakkaður í 50 kg. pakka, óskað er er að hann sé metinn fyrir Spán, og farmskírteini sýna að fiskurinn á að fara til Spánar, er erfitt fyrir okkur að hindra,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.