Ægir - 01.11.1931, Side 17
ÆGIR
227
Hér er enn eitt tilfelli, sem sannar, að
enginn gaumur er gefinn öllum þeim
skrifum og áminningum um að hafa ör-
yggislínur á bátum þegar veltingur er,
svo eitthvað sé í að grípa, skriki mönn-
um fótur. Síðasta bendingin er i nýút-
kominni »Vasabók sjómanna« og þótt
hún sé ekki enn í höndum margra, þá
hefur oft verið bent á öryggislínur í Ægi.
Eftir skýrslum sem lyfsali Sig. Sigurðs-
son i Vestmannaeyjum safnaði, féllu eitt
árið, 70 menn útbyrðis hér við land og
af þeim drukknuðu 7. Við nefnum þetta
hér að menn falli útbyrðis, en réttaraer
að segja, að þeim sé siglt útbyrðis.
Réttarhöld út af líkum slysum munu
sjaldan haldin en þó gert ráð fyrir, að
þau megi halda í 2. gr. laga nr. 30, Í9.
maí 1930, um breytingu á lögum nr. 73,
7. mai 1928, um slysatryggingar.
Þegar ráð við slíkum slysum eru marg-
endurtekin i ræðum og riti, virðist fyllsta
ástæða til að rannsaka ítarlega, hvortallt
hafi verið gert á skipi til þess að koma
í veg fyrir, að slys yrði. Það verður lík-
lega hið eina, sem knýr menn tilaðvið-
hafa almennar varúðarreglur á sjó og
minnir á, að fyrir slík atvik ber yfir-
mönnum skipa að standa fyrir máli sínu,
engu síður en hefði eitthvað brotnað á
skipi þeirra og þeir mættu út af því í
sjórétti.
22. nóvbr. 1931.
Sueinbj. Egilson.
Thomas A. Edison
hugvitsmaðurinn heimskunni, andaðist
að heimili sinu í East Orange í New-
Jersey fylki, þann 18. október. Hafði hann
kennt lasleika undanfarnar vikur.
Hann varð 84 ára gamall.
Mr. E. L. Salomonsen
Billingsgate, London.
Þessi maður hefur haft fiskverzlun á
Billingsgate fiskmarkaði í rúm 34 ár.
Hann stofnaði firmað Salomonsen & Co.
E. L. Salomonsen.
Ltd. í Love Lane E. C. 3., hinn l.októ-
ber 1897. Hann hefur annast sölu fisks
fyrir Daui og komið sölu þeirri i það
horf, sem hún hefur verið undanfarið og
á fiskmarkaði hans hefur mikið af is-
fiski frá íslandi verið selt. Hann hefur
sjálfur sagt blaðamönnum það, að stefna
sín frá byrjun hafi verið sú, að skipta
heiðarlega bæði við sendendur og kaup-
endur og láta sér jafn annt um hag
beggja aðilja.
Sömuleiðis getur hann þess, að væri
ekki hr. Nielsen félagi hans og þeir menn,
sem vinna á markaðinum, slíkt afkasta
fólk og reyzt hefur, hefði hann aldrei
komið fisksölunni í það horf, sem hún
er nú, á sölustað hans.
Hann hefur aldrei komið upp sölu-
búðum, þar sem smásala á fiski færi