Ægir - 01.11.1931, Blaðsíða 20
230
ÆGIR
fjarðurhorns og Reykjaboða á h. u. b.
65° 10'.8 n.br., 13° 30'.0 v.lgd. Skip eru
því vöruð við að fara þar á milli, þegar
mikil alda er.
34. Hinn 5. þ. m. var ljósi Vatnsnesvit-
ans (nr. 8) breytt eins og ráðgert var,
sbr. auglýsingu nr. 4, 9, og sýnir vitinn
nú hvitt og rautt þrileiftur á 10 sek. bili,
þannig: lj.0.5, + m. 1.5 -f 0.5 + 1.5 +
0.5 + 5.5 = 10. Ljósmagn og ljósmál
vitans verður fyrir hvíta ljósið 10.5 sm.
fyrir rauða ljósið 8.5 sm. Horn vitans
eru óbreytt.
35. Innsiglingarvitanum í Hafnarfirði
(nr. 11) hefir verið breytt, sbr. augl. nr.
5, 14, og er innsiglingarljósið nú eitt, í
efri vitabyggingingunni, grænt, hvitt og
rault, snöggt leiftur um 60 sinnum á
mín., grænt frá 67° til 96°, hvítt frá 96°
til 102°, rautt frá 102° til 127°. Ljós-
magn og ljósmál 12, 9.5 og 9 sm. fyrir
hvítt, rautt og grænt ljós. Vitahúsið er
óbreytt, en logtíminn verður framvegis
frá 15. júlí til 1. júni. Neðra vitahúsinu
verður haldið við sem dagmerki fyrir
innsiglinguna.
Vitamálastjórinn
Tollarnir í Englandi.
Matvara tollfrjáls enn þá. En búist við
enn víðtækari tollum innan skamms.
Útgerðarmenn hér í bæ fengu þær
fregnir nýlega, að tollur sá, er lagður var
á með skyndilöggjöf, samkvæmttillögum
verzlunarmálaráðherrans enska, næði ekki
til matvöru.
Eru þessar fregnir að sjálfsögðu öllum
íslendingum kærkomið gleðiefni — svo
langt sem þær ná. Hitt mega menn ekki
ætla, að öll hætta sé hjá liðin með þessu.
Því miður er svo ekki; þess vegna má
ekki láta niður falla aðgerðir til verndar
íslenzkum hagsmunum.
Enn er sem sé ófrétt, hvort breska
stjórnin ætlar að láta staðar numið við
þá tollvernd, sem nú hefur verið lögfest,
eða hvort látið verður að hinum háværu
kröfum alls almennings i ýmsum hafn-
arborgum. um innflutningsbann eða há-
an verndartoll á aðfluttum fiski.
Auk þess er með öllu óvist, hvað ibú-
ar hinna bresku útgerðarbæja gera, ef
stjórnarvöldin daufheyrast við kröfum
þeirra. Vitaskuld eru íslendingar jafnsárt
leiknir, hvort heldur íslenzkur fiskur er
bannfærður fyrir atbeina stjórnarvald-
anna eða með samtökum útgerðarmanna
og verkamanna um, að neita aðafgreiða
íslenzk skip. Eftir siðustu skeylum að
dæma, er þó svo að sjá, að ekki sé enn
stofnað til samtaka um afgreiðslubann
annarsstaðar en í Hull, og væri vel, ef
það héldist, þó vissast sé fyrir oss að
vera við öllu búnir. Fiskkaupmennirnir,
sem eru jafnframt útgerðarmenn, vilja
ekki hafa tolla. Þeir segja, að tollur á
fiski eyðileggi þeirra atvinnu og hækki
fiskverðið til neytenda. '
Isfisksala togaranna hefur undanfarið
gengið illa.
Athgr. Greinin »Svartfugl og fiskseiði
við lsland« kom út i tímaritinu »Nátt-
úrufræðingurinn«, fyrir skömmuogbauð
þá fiskifræðingur Árni Friðriksson, að
taka mætti þá stórmerkilegu grein upP
i »Ægi, sem hér með vottar honum beztu
þakkir fyrir.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentsmitSjan Gutenberg.