Ægir - 01.12.1931, Qupperneq 3
ÆGIR
MÁNAÐARIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
24. árg.
Reykjavík. — Des. 1931.
Nr. 12.
Rannsóknir á „Dönu“
hér við land 1931.
Ég gat þess í 6. tbl. Ægis þ. á., að haf-
rannsóknaskipið »Dana« væri væntanlegt
hingað i júli, eins oglikavarð. Hún kom
hingað beint frá Azóreyjum 8. júlí, eftir
harða útivist í norðan stórviðri hér suð-
ur í hafinu.
Georg Hansen var skipstjóri, eins og
áður, en dr. Vedel Táning stjórnaði rann-
sóknunum og hafði að eins einn mann,
ungan Skota, Bennett Rae að nafni, til að-
stoðar, en próf. Johs. Schmidt kom hing-
að á eftir, á farþegaskipi og var ekki á
skipinu fyr en seinna.
Þá er skipið hafði fengið kol og aðrar
nauðsynjar, lagði það af stað til rann-
sókna og var mér boðið að vera með
og þáði ég það með þökkum.
Var lagt af stað líðandi miðnætti 14.
júlí; en í stað þess að stanza úti i Fló-
anum, var nú haldið vestur fyrir Jökul
og »tekin« 1. rannsóknastöð út af Ond-
verðarnesi og svo næst út af Látrabjargi.
Voru að eins gerðar sjórannsóknir og
fiskuð svifseiði og aðrar svifverur með
stórum og smáum háfum og fékkst
margt af ýmsum seiðum, flest af ýsu.en
fátt af þorskseiðum; þau voru nú komin
f botn eða borin lengra burtu.
í staðinn fyrir að halda norður með
landi, eins og vant var áður, var nú
tekin stefna i rv. NV, þvi að nú átti að
bregða út af vananum og halda til Græn-
lands, skemmstu leið. Það hafði sem sé
komið fram við merkingar, bæði hér og
við Grænland, að þorskur gengur á milli
þessara landa (sbr. Ægi XXIII, 8. tbl.)
og þar sem það er kunnugt, að smá-
þyrsklingur veiðist, að minnsta kosti nú
hin síðustu ár, við Angmagsalikk á A-
strönd Grænlands (sjá Ægi þ. á bls. 131),
þá hafði próf. Schmidt dottið í hug, að
hann gæti verið kominn þangað sem
svifseiði frá íslandi, borin af álmu þeirri
afGolfstraumnum (Irminger-straumnum),
sem liggur frá V-strönd íslands í boga
yfir Grænlandshafið, yfir undir Grænland.
Átti »Dana nú að gera leit að svífandi
þorskseiðum vestur yfir hafið, yfir til
Grænlands, eða eins langt og ís leyfði,
ef þau kynnu að vera þar, því að það
hafði aldrei verið rannsakað áður, og
jafnframt athuga strauma.
Vér þurftum ekki langt að fara, til
þess að hitta ísinn, því þegar ég kom
upp næsta morgun (15. júli), var mikil
isbreiða framundan, að eins 65 sjómílur
NV af Bjargtöngum. Hún var eins og
langur skagi þvert í leið vorri og var
því ekki annað að gera en vikja suður
á við, þangað til komið var suður fyrir
enda hennar, svo var gamla stefnan tek-
in á ný, en brátt kom önnur spöng og
eftir það tvær aðrar, unz vér komum
að morgni 17. júlí í auðan sjó, en leið-
in varð af þessu öll i krákustig og vér
vissum ekki glöggt hvar vér vorura, því
að krókaleiðir og straumurinn höfðu bor-